Mál nr. 8/2018 Úrskurður 19. febrúar 2018
Mál nr. 8/2018 Eiginnafn: Lúis
Hinn 19. febrúar 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 8/2018 en erindið barst nefndinni sama dag.
Eiginnafnið Lúis (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Lúisar og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Lúis (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.