Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar 2008
Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir janúarmánuð liggur nú fyrir. Þar sem uppgjörið nær aðeins til eins mánaðar er samanburður við fyrra ár háður óvissu vegna tilfærslu milli mánaða og á það jafnt við um tekjur og útgjöld. Þetta getur valdið óeðlilega miklum sveiflum í einstaka liðum. Samkvæmt uppgjörinu er handbært fé frá rekstri jákvætt um 25,4 ma.kr., sem er 1,9 ma.kr. hagstæðari útkoma en á sama tíma í fyrra. Tekjur reyndust um 4,6 ma.kr. meiri en í fyrra á meðan gjöldin jukust um 3,3 ma.kr. Hreinn lánsfjárjöfnuður er jákvæður um 24,4 ma.kr. en var neikvæður um 6,8 ma.kr. á sama tíma í fyrra.
Sjóðstreymi ríkissjóðs janúar 2008
(Í milljónum króna) |
2004 |
2005 |
2006 |
2007 |
2008 |
Innheimtar tekjur |
24.204 |
29.894 |
41.132 |
51. 972 |
56.587 |
Greidd gjöld |
24.737 |
25.338 |
25.508 |
28.339 |
31.597 |
Tekjujöfnuður |
-533 |
4.556 |
15.624 |
23.633 |
24.990 |
Söluhagn. af hlutabr. og eignahl. |
-672 |
- |
- |
- |
- |
Breyting viðskiptahreyfinga |
-590 |
-1.901 |
-1.698 |
-115 |
420 |
Handbært fé frá rekstri |
-1.795 |
2.655 |
13.926 |
23.518 |
25.410 |
Fjármunahreyfingar |
204 |
3.219 |
-1.077 |
-30.342 |
-1.051 |
Hreinn lánsfjárjöfnuður |
-1.591 |
5.874 |
12.849 |
-6.824 |
24.359 |
Afborganir lána |
-17 |
-11.135 |
-4.049 |
-60 |
-576 |
Innanlands |
-17 |
-2.142 |
-4.049 |
-60 |
-576 |
Erlendis |
- |
-8.994 |
- |
- |
- |
Greiðslur til LSR og LH |
-625 |
- |
-330 |
-330 |
-330 |
Lánsfjárjöfnuður, brúttó |
-2.233 |
-5.261 |
8.470 |
-7.214 |
23.453 |
Lántökur |
7.674 |
5.563 |
1.532 |
31.861 |
-3.550 |
Innanlands |
8.012 |
-3.431 |
1.532 |
31.861 |
-3.550 |
Erlendis |
-338 |
8.994 |
- |
- |
- |
Breyting á handbæru fé |
5.442 |
302 |
10.002 |
24.647 |
19.903 |
Innheimtar tekjur ríkissjóðs í janúar námu 56,6 ma.kr. sem er 9,3% aukning frá janúar 2007. Þar af námu skatttekjur og tryggingagjöld 54,2 ma.kr. sem er 9,5% aukning frá fyrra ári og samsvarar raunaukningu um 3,7% miðað við hækkun almenns verðlags. Aðrar rekstrartekjur aukast um 6,7% en þær skýrast einkum af vaxtatekjum og sölu vöru og þjónustu.
Skattar á tekjur og hagnað námu 31,7 ma.kr. sem er 5,7% aukning frá árinu 2007. Þar af nam tekjuskattur einstaklinga 7,9 ma.kr. og lækkaði um 9,6% frá fyrra ári. Tekjuskattur lögaðila nam 0,3 ma.kr. Skattur af fjármagnstekjum nam 23,5 ma.kr. og jókst um 17,2% miðað við sama tímabil í fyrra, en innheimta hans fer að stærstum hluta fram í janúarmánuði hvert ár. Eignarskattar jukust um 40% frá fyrra ári og námu 831 m.kr., þar af námu stimpilgjöld 629 m.kr.
Innheimta veltuskatta nam 17,1 ma.kr. í janúar og jókst um 17,2% frá fyrra ári eða sem nemur 11,4% að raunvirði eftir að tekið hefur verið tillit til hækkunar vísitölu neysluverðs. Stærsti hluti veltuskatta eru tekjur af virðisaukaskatti sem nam 12,5 ma.kr. og jókst um 18,7% á milli ára eða 12,9% að raunvirði. Tekjur af áfengis- og tóbaksgjaldi lækkuðu að raunvirði um 2,5% að raunvirði. Önnur vörugjöld fylgdu verðlagsþróun að mestu. Vörugjöld af ökutækjum jukust um 90% að raunvirði og olíugjaldið um 1,7% en vörugjöld af bensíni drógust saman um 10,3% að raunvirði.
Af öðru má nefna að tekjur vegna tolla og aðflutningsgjalda jukust um 14% frá sama tíma í fyrra og námu um 850 m.kr. og innheimta tryggingargjalda er sú sama og í janúar 2007.
Greidd gjöld nema 31,6 ma.kr. og hækka um 3,3 ma.kr. frá fyrra ári, eða um 11,5%. Mest munar um eins milljarðs hækkun til menntamála eða 21% og vegur lánasjóður námsmanna þar þyngst með um 500 m.kr. hækkun á milli ára. Almannatryggingar og velferðarmál hækka um 0,6 milljarða milli ára eða 11%, og heilbrigðismál um 0,5 ma.kr. eða 6,8%. Þessir þrír málaflokkar vega langþyngst í heildarútgjöldum ríkisins og eru með tæplega 2/3 hluta útgjaldanna.
Lánsfjárjöfnuður ríkissjóðs er jákvæður um 23,5 ma.kr. í janúar, en lánsfjárþörfin var 7,2 ma.kr. á sama tíma í fyrra. Hreinn lánsfjárjöfnuður nam 24,4 ma.kr. Í janúar var gerður upp ríkisvíxill að fjárhæð 3,5 ma.kr.
Tekjur ríkissjóðs janúar 2008
|
Milljónir króna |
|
Breyting frá fyrra ári, % |
||||
|
2006 |
2007 |
2008 |
|
2006 |
2007 |
2008 |
Skatttekjur og tryggingagjöld |
39 043 |
49 532 |
54 218 |
|
37,6 |
26,9 |
9,5 |
Skattar á tekjur og hagnað |
25 445 |
29 976 |
31 697 |
|
54,3 |
17,8 |
5,7 |
Tekjuskattur einstaklinga |
7 766 |
8 714 |
7 880 |
|
7,2 |
12,2 |
-9,6 |
Tekjuskattur lögaðila |
4 143 |
1 232 |
333 |
|
942,5 |
-70,3 |
-72,9 |
Skattur á fjármagnstekjur |
13 535 |
20 030 |
23 484 |
|
53,0 |
48,0 |
17,2 |
Eignarskattar |
810 |
594 |
831 |
|
11,2 |
-26,8 |
40,0 |
Skattar á vöru og þjónustu |
9 324 |
14 560 |
17 057 |
|
14,2 |
56,2 |
17,2 |
Virðisaukaskattur |
5 370 |
10 560 |
12 532 |
|
9,4 |
96,6 |
18,7 |
Vörugjöld af ökutækjum |
732 |
441 |
864 |
|
20,6 |
-39,7 |
95,8 |
Vörugjöld af bensíni |
834 |
814 |
777 |
|
2,0 |
-2,5 |
-4,5 |
Skattar á olíu |
451 |
516 |
555 |
|
91,1 |
14,4 |
7,5 |
Áfengisgjald og tóbaksgjald |
830 |
865 |
894 |
|
4,6 |
4,3 |
3,3 |
Aðrir skattar á vöru og þjónustu |
1 107 |
1 364 |
1 435 |
|
38,0 |
23,2 |
5,3 |
Tollar og aðflutningsgjöld |
295 |
748 |
854 |
|
24,8 |
153,8 |
14,0 |
Aðrir skattar |
57 |
56 |
153 |
|
39,2 |
-1,3 |
170,3 |
Tryggingagjöld |
3 111 |
3 598 |
3 626 |
|
15,0 |
15,7 |
0,8 |
Fjárframlög |
38 |
35 |
- |
|
-29,6 |
-8,0 |
-100,0 |
Aðrar tekjur |
2 037 |
2 219 |
2 369 |
|
38,3 |
8,9 |
6,7 |
Sala eigna |
14 |
- |
- |
|
- |
- |
- |
Tekjur alls |
41 132 |
51 786 |
56 587 |
|
37,6 |
25,9 |
9,3 |
Gjöld ríkissjóðs janúar 2008
|
Milljónir króna |
|
Breyting frá fyrra ári, % |
|||
|
2006 |
2007 |
2008 |
|
2007 |
2008 |
Almenn opinber þjónusta |
3 003 |
3 332 |
3 862 |
|
10,9 |
15,9 |
Þar af vaxtagreiðslur |
512 |
639 |
1 080 |
|
24,8 |
69,1 |
Varnarmál |
136 |
33 |
84 |
|
-75,7 |
155,1 |
Löggæsla, réttargæsla og öryggismál |
820 |
1 173 |
1 250 |
|
43,1 |
6,5 |
Efnahags- og atvinnumál |
2 590 |
3 564 |
3 294 |
|
37,6 |
-7,6 |
Umhverfisvernd |
210 |
271 |
167 |
|
29,3 |
-38,4 |
Húsnæðis- skipulags- og veitumál |
43 |
32 |
43 |
|
-25,2 |
34,3 |
Heilbrigðismál |
7 110 |
7 084 |
7 569 |
|
-0,4 |
6,8 |
Menningar-, íþrótta- og trúmál |
1 422 |
1 739 |
1 763 |
|
22,3 |
1,4 |
Menntamál |
4 545 |
4 887 |
5 915 |
|
7,5 |
21,0 |
Almannatryggingar og velferðarmál |
5 161 |
5 694 |
6 318 |
|
10,3 |
11,0 |
Óregluleg útgjöld |
468 |
530 |
1 331 |
|
13,2 |
151,3 |
Gjöld alls |
25 508 |
28 339 |
31 597 |
|
11,1 |
11,5 |
Grein