Upplýsingaverkefni í þjónustu við fatlaða
Árni Magnússon félagsmálaráðherra og Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, undirrituðu í gær samkomulag um sameiginlegt þróunarverkefni varðandi upplýsingaverkefni í þjónustu við fatlaða, sem halda mun utan um alla sértæka félagsþjónustu á landinu. Í samræmi við samkomulagið munu iðnaðarráðuneyti og félagsmálaráðuneyti sameiginlega fjármagna verkefnið.
Samkomulagið tengist byggðaáætlun 2002-2005 þar sem m.a. er lögð áhersla á eflingu fjarvinnslu hjá hinu opinbera. Fjölmörg störf í þekkingarsamfélagi nútímans eru þess eðlis að unnt er að sinna þeim hvar sem er á landinu og án tillits til hvar notendur þjónustunnar eru búsettir. Samkomulagið styður því markmið byggðaáætlunarinnar að á landsbyggðinni verði unnt að stunda þróunarstarfsemi í upplýsingatækni og að þar séu einnig skapaðir möguleikar að reka þjónustustarfsemi sem ekki eingöngu er staðbundin heldur nái til landsins alls. Með því móti er stutt við uppbyggingu þekkingar á staðnum og lagður grunnur að nýrri atvinnuþróun.
Með tilkomu hins nýja upplýsingakerfis mun öll málaafgreiðsla verða skilvirkari og skila þjónustuþegum betra og einfaldara þjónustuviðmóti. Einnig er upplýsingakerfinu ætlað að styðja alla stjórnun þjónustunnar og hvetja til skilvirkari þjónustu og aukinna gæða hennar. Hið nýja upplýsingakerfi getur þannig orðið afar þýðingarmikið fyrir þjónustu við fatlaða og aðra sértæka félagsþjónustu.