COVID-19: Einangrun stytt úr sjö dögum í fimm
Einangrun vegna Covid-sýkingar verður stytt úr sjö dögum í fimm með reglugerð heilbrigðisráðherra sem tekur gildi mánudaginn 7. febrúar. Sem fyrr verður þó heimilt að framlengja einangrun ef þörf krefur samkvæmt læknisfræðilegu mati. Frá sama tíma er afnumin skylda þeirra til að sæta sóttkví eða viðhafa smitgát sem eru með afstaðna sýkingu, staðfesta með PCR-prófi sem er ekki yngra en 7 daga gamalt og ekki eldra en 180 daga.
Nánar um einangrun og afléttingu hennar
Einstaklingur sem er með staðfesta sýkingu af COVID-19 skal vera í einangrun í 5 daga frá greiningu, enda sé hann einkennalaus eða einkennalítill. Með litlum einkennum er átt við væg einkenni frá öndunarfærum og að viðkomandi sé hitalaus (þ.e. hiti lægri en 37,8°C) og hafi verið hitalaus a.m.k. síðastliðinn sólarhring áður en hann losnar úr einangrun. Fylgja skal reglum um smitgát í a.m.k. tvo daga eftir að einangrun lýkur.
Ath! Reglugerðin gildir einnig um þá sem eru í einangrun við gildistöku hennar. Það felur í sér að henni lýkur hjá þeim sem þegar hafa verið í einangrun í 5 daga eða lengur þegar reglugerðin tekur gildi 7. febrúar. Allir sem eru að ljúka einangrun frá skilaboð þess efnis í gegnum Heilsuveru og þar með en ekki fyrr lýkur einangruninni.
- Reglur um smitgát
- Reglugerð um 3. br. á reglugerð nr. 38/2022, ásamt leiðbeiningum sóttvarnalæknis um einangrun í heimahúsi
Reglugerð nr. 38/2022 - Reglugerð um 1. br. á reglugerð nr. 38/2022
- Reglugerð um 2. br. á reglugerð nr. 38/2022