Hvatning til að bæta þjónustu
Styrkir til gæðaverkefna árið 2006
16.06.2006
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið auglýsir styrki vegna gæðaverkefna í heilbrigðiskerfinu. Í styrkumsókn skal m.a. koma fram markmið verkefnisins, framkvæmdaáætlun og hvernig unnt er að nýta niðurstöður til að bæta þjónustuna.
Sótt er um í nafni einstakra stofnana og/eða starfseininga.
Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á heimasíðu heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins og í afgreiðslu ráðuneytisins, Vegmúla 3, sími 545 8700.
Umsóknir má senda inn rafrænt eða á pappír. Rafrænar umsóknir skal senda á netfangið postur hjá htr.stjr.is en aðrar umsóknir skal senda á heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, Vegmúla 3, 150 Reykjavík.
Gæðastyrkir umsóknareyðublað 2006 (word skjal)
Nánari upplýsingar veitir Margrét Björnsdóttir, deildarstjóri á áætlana- og þróunarskrifstofu í síma 545 8700.
Umsóknarfrestur er til 15. september 2006