Opið fyrir umsóknir í ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna á vef heimsmarkmiðanna, Óskað er eftir umsóknum frá ungmennum á aldrinum 13 til 18 ára hvaðanæva af landinu.
Valdir verða tíu nýir fulltrúar í ráðið auk tveggja fulltrúa sem halda munu sæti sínu frá fyrra starfsári. Nýskipað ungmennaráð mun koma saman í september og starfa út næstkomandi skólaár. Umsóknarfrestur er til og með 24. maí nk.
Ungmennaráð heimsmarkmiðanna tók fyrst til starfa í apríl 2018. Hlutverk þess er að fræðast og fjalla um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna ásamt því að koma áherslumálum sínum á framfæri og miðla upplýsingum um markmiðin og sjálfbæra þróun. Þá veitir ungmennaráðið stjórnvöldum ráðgjöf við innleiðingu markmiðanna ásamt því að funda árlega með ríkisstjórn.
Ein af megináherslum heimsmarkmiðanna er samvinna á milli ólíkra hagsmunaaðila um markmiðin, þ.á m. ungmenna. Ráðinu er þannig ætlað að vera lifandi vettvangur þar sem heimsmarkmiðin eru höfð að leiðarljósi og rædd með gagnrýnum og lausnamiðuðum hætti. Þá er starfsemi ungmennaráðsins í samræmi við sáttmála ríkisstjórnarinnar þar sem kveðið er á um að framfylgja skuli ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, meðal annars um aukin áhrif barna í samfélaginu.
Áformað er að skipuð verði valnefnd með ungmennafulltrúum til að yfirfara umsóknirnar og velja úr þeim fulltrúa í ráðið. Er það gert til að auka gagnsæi við úrvinnslu umsókna og styrkja umboð fulltrúa í ungmennaráðinu.
Umsóknarform fyrir ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna
Nánari upplýsingar um heimsmarkmiðin má finna á heimsmarkmidin.is og á Facebook síðum heimsmarkmiðanna og ungmennaráðsins.