Hoppa yfir valmynd
3. desember 2020 Utanríkisráðuneytið

Íslandi þakkaður stuðningur við Flóttamannastofnun

Eiginkonan, Maimouna, ásamt börnum þeirra í Ouallam búðunum í Níger. Maliki (til vinstri), níu ára vonast til að geta keypt hús fyrir móður sína þegar hann verður orðinn stór. Ljósmynd: © UNHCR/Boubacar Younoussa Siddo - mynd

„Moumouni Abdoulaye er meðal þeirra 2,7 milljóna íbúa á Sahel-svæðinu í Afríku sem hefur neyðst til að flýja heimili sitt í leit að öryggi. Framlag Íslands á dögunum til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) gerir stofnuninni kleift að vernda flóttafólk eins og hann og fjölskyldu hans,“ segir í frétt frá UNHCR þar sem þakkað er fyrir mikilvægan stuðning Íslands við vandann á Sahel svæðinu þar sem fólk flosnar upp í miklum mæli, vegna meðal annars stríðsátaka, fátæktar og hungurs.

Í október tilkynnti utanríkisráðuneytið um 80 milljóna króna framlag til Flóttamannastofnunar vegna ástandsins í Níger, Malí og Búrkina Fasó. Í frétt UNHCR segir að hvergi í heiminum flosni fólk upp í jafn miklum mæli og í þessum heimshluta í Vestur-Afríku. Átök og ofbeldi magnist með handahófskenndum árásum og voðaverkum herskárra hópa. Eldur sé borinn að heilu þorpunum, karlmenn teknir af lífi, konum og stúlkum nauðgað, og árásir á skóla stofni menntun barna í hættu.

Moumouni Abdoulaey flúði með fjölskyldu sína frá heimili þeirra þegar stríðsátök færðust í grennd við þorpið þeirra. „Nágrönnum mínum og venslafólki hafði verið rænt, einhver þeirra drepin, og eigur þeirra teknar ófrjálsri hendi. Ég neyddist til að yfirgefa heimabæ minn, þar sem ég fæddist, til að bjarga lífi fjölskyldunnar,“ er haft eftir honum í frétt Flóttamannastofnunar.

„Moumouni, eiginkona hans og börn, það yngsta aðeins fárra mánaða gamalt, neyddust til að ganga í marga daga uns komið var að landamærunum við Níger. Fjölskyldan býr nú í flóttamannabúðum UNHCR í Ouallam í Níger þar sem þau fá öll mat og skjól – og það sem mikilvægast er – vernd,“ segir í fréttinni.

Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna veitir fólki á Sahel svæðinu aðstoð, þar á meðal teppi, búnað til eldunar og aðgang að heilbrigðisþjónustu. Þörf er á fleiri stöðum þar sem flóttafólk er óhult, segir í fréttinni og minnt er á að börn eru svipt menntun og yfirstandandi heimsfaraldur kórónuveiru hafi gert ástandið enn verra. „Stuðningur frá löndum eins og Íslandi hjálpar Flóttamannastofnun að bregðast við þessum ört vaxandi þörfum.“

„Aðstæðurnar á Sahel svæðinu krefjast brýnna aðgerða og stuðnings. Framlag Íslands er bæði tímabært og lífsnauðsynlegt, þar sem það hjálpar okkur að bregðast við fjölmörgum þörfum, bæði flóttafólks og þeirra sem eru á vergangi á svæðinu,“ segir Henrik M. Nordentoft, fulltrúi Norðurlanda og Eystrasaltsríka hjá UNHCR.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
3. Heilsa og vellíðan
4. Menntun fyrir öll

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta