Hoppa yfir valmynd
17. nóvember 2016 Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 450/2016

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 17. nóvember 2016 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 450/2016

í stjórnsýslumáli nr. KNU1609002

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Með stjórnsýslukæru, dags. 15. september 2016, kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) þá ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 26. ágúst 2016, að synja honum um hæli á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f laga nr. 96/2002, um útlendinga. Eiginkona kæranda kom með honum til landsins og sótti einnig um hæli.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og breytt á þann hátt að kæranda verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga. Til vara er sú krafa gerð að kæranda verði veitt dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 30. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um hæli hér á landi þann 3. ágúst 2016 og sótti samdægurs um hæli hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Kærandi mætti í viðtal hjá Útlendingastofnun þann 4. ágúst 2016 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 26. ágúst 2016, um að synja kæranda um hæli og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða eða sérstakra tengsla við landið, var birt honum þann 31. ágúst 2016. Kærandi kærði ákvörðunina þann 15. september s.á. til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð vegna kæru barst kærunefnd þann 10. október 2016.

Kæra þessi er afgreidd á grundvelli 2. mgr. 3. gr. b laga nr. 96/2002 um útlendinga, sbr. lög nr. 38/2016. Gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggði umsókn sína um hæli á því að hann skuldi vinum sínum fé. Hann hafi greitt tiltekinni konu og fyrirtækinu [...] háar fjárhæðir í þeim tilgangi að útvega sér atvinnuleyfi í [...]. Kærandi hafi þurft að fá lánað fé frá vinum sínum sem hann hafi ætlað að borga til baka. Konan hafi því næst horfið og kærandi hafi kært málið til lögreglu sem hafi upplýst hann um handtöku konunnar og sagt kæranda að bíða og fylgjast með framhaldinu. Kærandi kveður fyrirtækið hafa verið stóra svikamyllu [...]. Vinir kæranda hafi því næst hafið að hóta honum og krefja hann um endurgreiðslu. Kærandi ákvað því að flýja land ásamt eiginkonu sinni.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar var fjallað um greinargerð talsmanns kæranda. Þar kemur fram að Útlendingastofnun telji frásögn kæranda í meginatriðum samhljóða viðtölum hjá stofnuninni og greinargerð í megindráttum í samræmi við framburð kæranda. Hins vegar hafi verið fyrir að fara ágöllum í greinargerð talsmanns kæranda á tilteknum atriðum en stofnunin taki fram að þeir ágallar hafi ekki áhrif á mat á trúverðugleika kæranda sjálfs. Útlendingastofnun dragi ekki í efa frásögn kæranda um að hafa fengið hótanir frá vini sínum. Í ákvörðun Útlendingastofnunar var fjallað um aðstæður og ástand mannréttindamála í [...] og í því tilefni vísað til alþjóðlegra skýrslna. Útlendingastofnun fjallaði einnig um refsivörslukerfið í ákvörðun sinni og sagði, m.a. að eftirfylgni við brot gegn refsilöggjöf væri góð, miklu fjármagni hafi verið veitt í lögreglumál og lögreglumönnum fari fjölgandi ásamt því sem spilling fari minnkandi. Var það mat Útlendingastofnunar að með vísan til fyrirliggjandi gagna yrði að hafna fullyrðingum kæranda um að lögregla og yfirvöld í [...] geti ekki veitt honum viðeigandi aðstoð.

Þá kemur fram í ákvörðun Útlendingastofnunar að kærandi sé hér á landi með [...] eiginkonu sinni en með vísan til viðtals við kæranda og fyrirliggjandi gagna í málinu verði það eitt og sér ekki talið gera það að verkum að kærandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem geti haft áhrif á niðurstöðu í máli hans.

Í niðurstöðu Útlendingastofnunar kemur fram að ekki verði talið að kærandi hafi gefið haldbærar skýringar á þeim fullyrðingum sínum að honum sé vernd lögregluyfirvalda í [...] útilokuð. Þá séu aðstæður í [...] almennt til þess fallnar að tryggja mannréttindi og öryggi einstaklinga. Útlendingastofnun byggi við úrlausn málsins á því að kærandi hafi tapað háum fjárhæðum og orðið fyrir hótunum. Hins vegar sé það mat stofnunarinnar að kærandi geti leitað ásjár yfirvalda vegna vandamála sinna. Útlendingastofnun telji að þau atvik sem kærandi lýsti nái hvergi nærri þeim alvarleika að þeim verði jafnað til ofsókna í skilningi 1. mgr. 44. gr., sbr. 44. gr. a, laga um útlendinga. Útlendingastofnun áréttaði einnig að aðstæður þær sem kærandi hafi lýst tengist á engan hátt kynþætti, trúarbrögðum eða þjóðerni kæranda, aðildar hans að tilteknum þjóðfélagshópi eða stjórnamálaskoðunar hans. Þegar af þeirri ástæðu taldi Útlendingastofnun að 1. mgr. 44. gr. gæti ekki átt við í málinu og að synja bæri kæranda um hæli á þeim grundvelli. Þá var það mat Útlendingastofnunar að þær aðstæður sem kærandi hafi lýst næðu ekki þeim alvarleika að þeim verði jafnað til illrar meðferðar í skilningi 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga og því bæri jafnframt að synja kæranda um hæli á þeim grundvelli. Af framangreindu virtu var það mat Útlendingastofnunar að kærandi sé ekki flóttamaður og því beri að synja honum um hæli á Íslandi sbr. ákvæði 44. gr. og 1. mgr. 46. gr. útlendingalaga.

Varðandi kröfu kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f segir í ákvörðun Útlendingastofnunar að ekki verði talið að kærandi eigi rétt á dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða vegna almennra aðstæðna í heimaríki. Auk þess verði ekki ráðið af viðtali við kæranda að hann eigi rétt á dvalarleyfi á fyrrgreindum grundvelli vegna ríkrar þarfar á vernd eða annarra atvika sem ekki mætti með réttu gera honum að bera ábyrgð á. Einnig liggi fyrir að lögregluvernd sé í boði gegn þeim ofbeldisglæpum sem kærandi telji sig eiga í hættu og því verði að hafna kröfu kæranda um að honum verði veitt dvalarleyfi af mannúðarástæðum þar sem stjórnvöld í [...] annað hvort vilji ekki eða geti ekki veitt þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum af því tagi sem um ræði. Kærandi bar ekki við sérstökum tengslum við landið og taldi Útlendingastofnun að ekkert í málinu benti til að svo væri, þ.a.l. var kæranda synjað um dvalarleyfi vegna sérstaklega tengsla við Ísland skv. 1. mgr. 12. gr. f. útlendingalaga.

Þá var ekki talið að 45. gr. laga um útlendinga stæði í vegi endursendingu kæranda til heimaríkis.

Að lokum var kæranda vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 18. gr. útlendingalaga. Útlendingastofnun tilkynnti jafnframt kæranda að kæra frestaði ekki framkvæmd ákvörðunar hennar með vísan til c-liðar 1. mgr. 32. gr. útlendingalaga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kemur fram að helsta ástæða flótta kæranda frá heimalandi sínu sé vantraust á vilja og getu stjórnvalda til þess að veita honum vernd gagnvart þeim sem hafa staðið í ofbeldis- og líflátshótunum við hann. Kærandi sé stórskuldugur og atvinnulaus heima í [...]. Skuldastaða kæranda stafi af svikastarfsemi fyrirtækis að nafni [...]. Þetta sé fyrirtæki sem hafi boðið fólki milliliðaþjónustu við að útvega dvalarleyfi og atvinnu í [...]. Fyrirtækið hafi innheimt háar greiðslur frá einstaklingum sem laun fyrir þjónustu sína og til að greiða opinber gjöld vegna umsókna um landvistarleyfi í [...]. Kærandi hafi fengið lánað fé frá vinum og vandamönnum til að standa við þessar skuldbindingar og borgað fyrirtækinu umbeðnar greiðslur. Í ljós hafi komið að um svikastarfsemi hafi verið að ræða þegar forsvarsmenn fyrirtækisins hafi horfið ásamt fjármununum og að ekkert hafði verið aðhafst varðandi atvinnuleit fyrir viðskiptavini fyrirtækisins né hafi verið unnið í því að útvega þeim dvalarleyfi. Þá hafi kærandi kært fyrirtækið til lögreglunnar sem hafi handtekið forsprakka þess en hafi ekki aðhafst neitt frekar. Þessi atvik hafi haft mikil áhrif á fjárhagsstöðu kæranda og í kjölfarið hafi lánadrottnar birst heima hjá honum, krafist greiðslu skuldarinnar og haft í hótunum við kæranda. Kærandi hafi óttast um líf sitt og heilsu og því leitað skjóls utan heimalands síns. Fram kemur í greinargerðinni að álagið komi sér einkar illa fyrir eiginkonu kæranda [...].

Í greinargerð kæranda kemur fram að í [...] ríki mikil spilling, m.a. í réttarkerfi [...] sem standi höllum fæti, m.a. vegna vandamála varðandi sjálfstæði, gagnsæi og virkni. Skipulögð glæpastarfsemi sé mikil þar sem [...] mafían hafi verið áberandi. Þá hafi sérstakri deild innan stjórnsýslunnar verið falið það verkefni að taka á skipulagðri glæpastarfsemi en án árangurs. Jafnframt segir í greinargerð að rannsóknir ríkislögreglunnar á spillingarmálum hafi einkennst af lekum á rannsóknargögnum, pólitískum þrýstingi og handahófskenndri tilfærslu verkefna innan kerfisins. Refsileysi og skortur á gagnsæi sé jafnframt mikið áhyggjuefni og þrátt fyrir að lög hafi verið samþykkt sem mæli fyrir um harðari refsingar við opinberri spillingu þá hafi lögin ekki verið innleidd á árangursríkan hátt og spilltir embættismenn komist því áfram undan refsingu. Spilling innan raða lögreglumanna sé jafnframt gríðarlegt vandamál. Kærandi gagnrýnir að í ákvörðun Útlendingastofnunar sé einungis fjallað almennt um aðstæður í [...] og með afar valkvæðum hætti sem leiði til þess að álykta megi að heimaland kæranda sé fyrirmyndarríki þegar komi að mannréttindum og öryggi borgaranna. Kærandi bendir á að ástandið í [...] sé ekki jafn gott og ætla megi af umfjöllun Útlendingastofnunar og vísar, m.a. til sömu skýrslna og Útlendingastofnun mati sínu til stuðnings.

Kærandi kveður í greinargerð helstu ástæðu flótta síns frá [...] vera vantraust á vilja og getu stjórnvalda til þess að veita honum vernd gagnvart þeim sem hafi hótað honum ofbeldi- og lífláti. Að mati kæranda sé í raun óraunhæft að ætlast til þess að hann geti leitað ásjár [...] yfirvalda þegar allar heimildir bendi til þess að spilling og mútuþægni séu landlæg vandamál og traust til lögreglu afar bágborið. Í greinargerð kæranda er jafnframt lögð áhersla á að hælisumsóknir beri að meta sjálfstætt úr frá hverjum einstaklingi, á grundvelli hlutlægra og nýjustu upplýsinga um stöðu mála í heimalandi og aðstæðum viðkomandi frekar en á almennum fullyrðingum um að ríki séu „tiltölulega örugg lýðræðisríki“.

Í greinargerð kæranda er þess aðallega krafist að honum verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga. Kærandi vísar m.a. máli sínu til stuðnings til e-liðar 2. gr. tilskipunar Evrópusambandsins nr. 2004/83/EB frá 29. apríl 2004. Tilskipunin hafi nú verið endurskoðuð með tilskipun nr. 2011/95/ESB. Samkvæmt þeim lið er einstaklingur sem nýtur alþjóðlegrar verndar ríkisborgari þriðja lands eða ríkisfangslaus einstaklingur sem uppfyllir ekki skilyrði sem sett eru varðandi flóttamenn, en þó er rökstudd ástæða til að ætla að verði honum vísað til heimalands síns eða þess lands þar sem hann hafði reglulegt aðsetur sé honum raunhæf hætta búin að verða fyrir alvarlegum skaða vegna brota á nokkrum grundvallarréttindum. Samkvæmt 1-lið 15. gr. fyrrgreindar tilskipunar felist í hugtakinu alvarlegur skaði m.a. dauðarefsingar eða aftökur en kærandi telur að þetta eigi við í máli sínu þar sem hann óttist að lánadrottnar muni drepa hann ef hann snúi aftur til [...]. Kærandi telur líkt og áður hefur komið fram að [...] lögreglan sé spillt og blandi sér ekki í einkadeilur fólks sem leiði til þess að hann sé ófær um að færa sér í nyt vernd heimalands síns. Kærandi vísar í greinargerð sinni einnig til 45. gr. laga um útlendinga og samsvarandi grundvallarreglu þjóðaréttar um bann við því að vísa fólki brott eða endursenda þangað sem líf þess eða frelsi kunni að vera í hættu (non-refoulment). Í greinargerðinni kemur fram í tengslum við 45. gr. útlendingalaga að í máli kæranda liggi fyrir sannfærandi framburður kæranda auk gagna er styðji frásögn hans og því telji hann ljóst að mat Útlendingastofnunar og synjun umsóknar kæranda sé eingöngu byggð á því að [...] sé almennt talið öruggt ríki.

Kærandi gerir varakröfu um að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f útlendingalaga. Í greinargerð kæranda kemur fram að hann telji skilyrðin uppfyllt þar sem stjórnvöld í [...], fyrst og fremst lögreglan, annað hvort vilji ekki eða geti ekki veitt þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum af því tagi sem hér um ræði og því beri að veita honum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagarammi

Í máli þessu gilda ákvæði laga nr. 96/2002 um útlendinga, reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga með áorðnum breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að þegar kærandi sótti um hæli á Íslandi hafi hann framvísað [...] vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé [...] ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í [...] m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

[...]

Í ofangreindum gögnum kemur, m.a. fram að í [...] sé virkt réttar- og löggæslukerfi og að stjórnvöld hafi almennt góða stjórn á lögreglunni. Enn séu dæmi um spillingu en ríkisstjórnin hafi sýnt aukna viðleitni til að bregðast við vandanum og sett á fót kerfi sem miði að því að rannsaka og refsa lögreglumönnum fyrir brot í starfi. Samkvæmt ofangreindu hafa [...] yfirvöld almennt vilja og getu til að veita [...] borgurum vernd. Þá sé sérstaklega vilji fyrir hendi til að veita borgurum vernd þegar þeir hræðist áreiti af hálfu þriðja aðila sem sé ótengdur ríkinu eða spilltra opinberra starfsmanna.

Krafa um hæli á grundvelli 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga

Til að teljast flóttamaður hér á landi þarf kærandi að sýna fram á að aðstæður hans séu slíkar að þær falli undir 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga, sbr. flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna, eða 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Kærandi byggir kröfu sína á að hann sé í hættu í heimaríki sínu vegna ofbeldis- og líflátshótana lánadrottna sinna.

Í 1. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og viðauka við samninginn frá 31. janúar 1967. Um skilyrði þess að teljast flóttamaður er frekar mælt í 44. gr. a.

Almennt ber að telja ótta umsækjanda ástæðuríkan ef hann getur á nægilega skýran hátt sýnt fram á að áframhaldandi dvöl í heimalandi sé honum óbærileg af ástæðum sem tilgreindar eru í ákvæðinu, eða yrði óbærileg af sömu ástæðum ef hann sneri aftur. Þessi sjónarmið þurfa jafnframt ekki endilega að byggjast á persónulegri reynslu umsækjanda, heldur geta ofsóknir sem vinir hans eða ættingjar eða aðrir sem tilheyra sama þjóðfélagshópi hafa orðið fyrir, gefið til kynna að ótti hans við að verða fyrr eða síðar fórnarlamb ofsókna sé ástæðuríkur.

Í 44. gr. a útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir, á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggt og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Til þess að um sé að ræða ofsóknir skv. 1. mgr. 44. gr. verður að vera um að ræða athafnir sem í eðli sínu, eða vegna þess að þær eru endurteknar, fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samansafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 3. mgr. 44. gr. a eru taldir upp þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þar segir að:

Þeir sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eru:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess, og

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið þessarar málsgreinar, þar með talið alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 44. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Þótt fallist sé á að einstaklingur í þessari aðstöðu skuli njóta vafans upp að ákveðnu marki, verður kærandi a.m.k. að sýna fram á að einhverjar líkur séu á að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Samkvæmt meginreglum um túlkun flóttamannahugtaksins sem fram koma í handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, er m.a. miðað við það að viðkomandi þurfi almennt að sýna fram á að gildar ástæður liggi til grundvallar ótta við ofsóknir og að hugarástand flóttamannsins skipti ekki eitt máli heldur verði yfirlýsing hans einnig að fá stuðning í hlutlægum og staðreynanlegum aðstæðum (Handbók um réttarstöðu flóttamanna. Um málsmeðferð og skilyrði samkvæmt flóttamannasamningnum frá 1951 og bókun frá 1967 um réttarstöðu flóttamanna. (Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Reykjavík 2008).

Kærandi byggir á því að líf sitt sé í hættu þurfi hann að snúa aftur til heimalands síns vegna hótana lánadrottna hans um ofbeldi eða jafnvel líflát. Af hálfu kæranda er það staðhæft að [...] stjórnvöld hafi hvorki vilja né getu til að veita honum nauðsynlega vernd gagnvart lánadrottnum sínum. Kærandi hefur ekki leitað aðstoðar yfirvalda vegna fyrrnefndra hótana. Hins vegar hefur kærandi leitað til lögreglu vegna tjóns sem hann varð fyrir í viðskiptum sínum við fyrrnefnt svikafyrirtæki og var tekin skýrsla af kæranda hjá lögreglu vegna málsins sem er framlögð í málinu. Skýrslur og gögn sem kærunefndin hefur skoðað renna ekki stoðum undir staðhæfingu kæranda um að lögreglan hafi ekki afskipti af hótunum vegna skulda. Enn fremur benda gögn til þess að löggæslukerfi í heimalandi kæranda fari batnandi og lögreglan hafi almennt vilja og getu til að veita borgurum landsins vernd og þá sérstaklega þegar þeir óttist ofbeldi af hálfu þriðja aðila [...]

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða áreiti af hendi [...] yfirvalda. Þá benda gögn málsins ekki til slíkra ofsókna eða hættu á slíkum ofsóknum. Skýrslur og gögn sem kærunefnd hefur skoðað benda ekki til þess stjórnvöld geti ekki eða vilji ekki veita honum vernd gegn ofsóknum, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir. Er það því mat kærunefndar að kærandi hafi raunhæfan möguleika á að leita sér ásjár stjórnvalda í [...]. Þá bendir ekkert til þess að hótanir þær sem kærandi kveðst sæta tengist á nokkurn hátt kynþætti hans, trúarbrögðum eða þjóðerni, aðild að tilteknum þjóðfélagshópi eða stjórnmálaskoðunum hans, sbr. 1. mgr. 44. gr. laga um útlendinga og 2. mgr. 44. gr. a s.l. Að öllu framangreindu virtu telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga fyrir veitingu stöðu flóttamanns.

Ákvæði 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga

Í 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga er kveðið á um að flóttamaður samkvæmt útlendingalögum telst einnig útlendingur sem telst ekki flóttamaður samkvæmt ákvæði A-liðar 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna ef raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til heimalands.

Við mat á hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki eru fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og frásögn kæranda verður að fá stuðning í öðrum gögnum, sbr. t.d. úrlausn Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N.M. og M.M. gegn Bretlandi (mál nr. 38851/09 og 39128/09) frá 25. janúar 2011.

Í þeim gögnum sem kærunefndin hefur farið yfir kemur m.a. fram að stjórnvöld í [...] vinni að því að bæta réttarkerfi landsins og frelsi og öryggi almennings. Hefur þó nokkur árangur náðst síðustu ár þó að enn sé þörf á frekari umbótum. Kærandi hefur ekki leitað aðstoðar lögreglu eða annarra yfirvalda í heimalandi sínu vegna þeirra hótana sem hann kveðst hafa orðið fyrir. Þó að rétt sé að veikleikar séu á réttarkerfinu í [...] þá hafa átt sér stað umbætur á liðnum árum og því er það mat kærunefndar að þó svo að kærandi ætti raunverulega á hættu að sæta ofbeldi í heimalandi sínu, af hálfu lánadrottna sinna, þá hafi hann raunhæfan möguleika á að leita sér ásjár stjórnvalda. Heimildir styðja því ekki við þá staðhæfingu kæranda að [...] stjórnvöld skorti vilja eða getu til að veita kæranda viðeigandi vernd óski hann eftir henni við þau.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um [...] telur kærunefndin að aðstæður kæranda í heimalandi hans séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 44. gr. laganna. Þá telur kærunefndin ekkert fram komið sem bendir til þess að hætt sé við því að kærandi muni sæti ómannúðlegri og/eða vanvirðandi meðferð við heimkomuna, sbr. 2. mgr. 44. og 1. mgr. 45 gr. laganna.

Ákvæði 12. gr. f útlendingalaga

Samkvæmt 12. gr. f er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi, þótt skilyrðum sé annars ekki fullnægt, ef rík mannúðarsjónarmið standa til þess eða vegna sérstakra tengsla útlendingsins við landið. Í 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að veita má dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum, eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til eða vegna annarra atvika sem ekki má með réttu gera honum að bera ábyrgð á. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Kærunefnd telur með vísan til orðalags ákvæðisins um „rík mannúðarsjónarmið“ og „ríka þörf á vernd“ auk lögskýringagagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 12. gr. f laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. til heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Kærunefndin hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga og teljist því ekki flóttamaður. Þegar framburður kæranda er virtur í heild sinni ásamt gögnum málsins er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi heldur ekki sýnt fram á ríka þörf á vernd á grundvelli mannúðarsjónarmiða líkt og kveðið er á um í 12. gr. f útlendingalaga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í [...] séu ekki með þeim hætti að rík mannúðarsjónarmið standi til þess að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarástæðna skv. 12. gr. f útlendingalaga.

Jafnframt telur kærunefndin kæranda ekki uppfylla skilyrði 12. gr. f útlendingalaga um sérstök tengsl við landið. Eins og fram kemur í gögnum málsins hefur kærandi aðeins dvalið á Íslandi í skamman tíma.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The Directorate of Immigration‘s decision is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Hjörtur Bragi Sverrisson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta