Ný heimasíða hjá Flugmálastjórn Íslands
Flugmálastjórn Íslands er komin með nýja heimasíðu á slóðinni www.flugmalastjorn.is . Markmiðið með nýju heimasíðunni er m.a. að auka þjónustu við aðila í flugi sem og almenning.
Stefnt er að því að auka upplýsingar sem almenningur hefur aðgang að á síðunni, m.a. um flugvelli í landinu.
Á heimasíðunni má t.d. finna upplýsingar um lög og reglugerðir sem snerta flugmál og ýmsar tölfræðilegar upplýsingar varðandi flug. Á síðunni er einnig hægt að nálgast ýmis eyðublöð sem og auglýsingar frá Flugmálastjórn.