Hoppa yfir valmynd
4. apríl 2014 Dómsmálaráðuneytið

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar getur hafist 5. apríl

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninganna 31. maí 2014 getur hafist laugardaginn 5. apríl. Kjósanda er heimilt að greiða atkvæði utan kjörfundar frá og með þeim degi og til kjördags. Innanlands er hægt að kjósa hjá öllum sýslumönnum á landinu, á aðalskrifstofum eða í útibúum þeirra. Sjá nánari upplýsingar á vef sýslumanna.

Atkvæðagreiðsla erlendis er á vegum utanríkisráðuneytisins og hefst 7. apríl. Upplýsingar þar um má nálgast á vef ráðuneytisins.

Á vefnum kosning.is er að finna myndband til leiðbeiningar þeim sem kjósa utan kjörfundar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta