Hoppa yfir valmynd
28. september 2021 Heilbrigðisráðuneytið

COVID-19: Breyttar reglur um takmarkanir á landamærunum 1. október

Felld verður niður krafa um að einstaklingar með tengsl við Ísland þurfi að framvísa vottorði um neikvætt Covid próf við komu til landsins. Farþegar í tengiflugi sem ekki fara út fyrir landamærastöð verða einnig undanþegnir framvísun slíks vottorðs. Sem fyrr þurfa þeir sem eru með tengsl við Ísland að fara í sýnatöku eftir komu til landsins, að undanskildum börnum sem fædd eru 2005 eða síðar. Þetta er meginefni breytinga á takmörkunum á landamærum vegna Covid-19 sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis og er gert ráð fyrir að þær gildi til 6. nóvember næstkomandi.

Í minnisblaði sóttvarnalæknis til ráðherra kemur fram að daglegum smitum innanlands hefur fækkað frá því að aðgerðir innanlands og á landamærum voru hertar í júlí og ágúst og innlögnum á sjúkrahús sömuleiðis. Hann segir ljóst að smit halda áfram að berast til landsins og að raðgreiningar Íslenskrar erfðagreiningar sýni að smit frá fáum einstaklingum, bólusettum og óbólusettum dugi til að setja af stað útbreiddan faraldur innanlands. Í ljósi reynslunnar undanfarið telur sóttvarnalæknir ráðlegt að lágmarka dreifingu veirunnar með takmörkunum á landamærum og segir virkar landamæravarnir forsendu þess að hægt verði að slaka að mestu á takmörkunum innanlands. 

Landamæratakmarkanir frá 1. október

Farþegar með tengsl við Ísland þurfa ekki lengur að sýna vottorð um neikvætt Covid próf á landamærunum en sæta sýnatöku við komuna til landsins, hvort sem þeir eru bólusettir eða ekki. Óbólusettir farþegar þurfa sem fyrr að sýnatöku lokinni að sæta fimm daga sóttkví og fara í PCR próf við lok sóttkvíar.

Bólusettir farþegar án tengsla við Ísland þurfa sem fyrr að framvísa vottorði um neikvætt Covid próf sem er ekki eldra en 72 klukkustunda í stað sýnatöku við komuna til landsins. Séu þeir óbólusettir þurfa þeir að auki að sæta tvöfaldri sýnatöku með fimm daga sóttkví á milli.

Áfram gilda sömu reglur um bólusetta og um þá sem hafa vottorð um fyrri sýkingu.

Börn fædd 2005 eða síðar og tengifarþegar sem ekki fara út fyrir landamærastöð sæta engum takmörkunum vegna sóttvarna á landamærum.

Minnt er á að farþegum er skylt að forskrá sig fyrir komuna til landsins á vefnum Covid.is.

Í minnisblaði sóttvarnalæknis er tillaga um að hætt verði að viðurkenna mótefnamælingar gegn SARS-CoV sem staðfestingu um afstaðna sýkingu af völdum COVID-19. Ráðherra hefur ákveðið að skoða þá tillögu nánar og afla frekari upplýsinga áður en endanleg ákvörðun þar að lútandi verður tekin.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta