Breyting á lögum um helgidagafrið
Ráðuneytið vekur athygli á nýjum lögum um breyting á lögum um helgidagafrið, nr. 32/1997, sem samþykkt hafa verið á Alþingi, sem lög nr. 18/2005.
Sérstök athygli er vakin á því að með lagabreytingunni er ákvæðum er varða opnunartíma verslana á Hvítasunnudag breytt frá því sem áður var.
Lög nr. 18/2005 um breytingu á lögum um helgidagafrið nr.32/1997 (PDF-skjal)
Lög um helgidagafrið nr. 32/1997