Heilsuapp Norðurlandanna 2024
Nordic Innovation, stofnun sem heyrir undir norrænu ráðherranefndina, hefur opnað fyrir umsóknir í samkeppni um Heilsuapp Norðurlandanna 2024.
Samkeppnin er ætluð norrænum fyrirtækjum sem hafa þróað snjallforrit (e. app) eða stafræna vöru sem býður upp á lausnir sem snúa að umönnun, heimahlynningu eða annarri klínískri þjónustu. Um er að ræða tilvalið tækifæri fyrir fyrirtæki til að koma lausnum sínum á framfæri og er þátttaka fyrirtækjum að kostnaðarlausu.
Nánari upplýsingar um Heilsuapp Norðurlandanna er að finna á heimasíðu Nordic Innovation.
Umsóknarfrestur er til 29. febrúar. Umsóknareyðublað má nálgast með því að smella hér.