Hakkarar Íslands keppa í beinu streymi
Lið Íslands tekur nú þátt í Netöryggiskeppni Evrópu (e. European Cyber Security Challenge) sem stendur yfir í Tórínó á Ítalíu dagana 8.-11. október. Lið Íslands er skipað þeim keppendum sem náðu bestum árangri í Gagnaglímunni, Netöryggiskeppni Íslands, sem haldin var 25. maí síðastliðinn fyrir ungmenni á aldrinum 14 til 25 ára.
Í Netöryggiskeppni Evrópu munu lið frá 37 löndum keppa í áskorunum á borð við Capture-The-Flag, Jeopardy og Attack-Defense. Tilgangur keppninnar er að vekja áhuga ungs fólks á netöryggi og ýta undir menntun og þjálfun í tölvuöryggismálum í Evrópu.
Hægt er að fylgjast með keppninni í beinni útsendingu á YouTube en hún stendur yfir í dag og á morgun. Keppninni lýkur síðan með verðlaunaafhendingu 11. október.
- Hlekkur á fyrri dag keppninnar, 9. október: https://www.youtube.com/watch?v=kS_smpqaN7A
- Hlekkur á seinni dag keppninnar, 10. október: https://www.youtube.com/watch?v=f-OOKJKtr4s