Ávarp ráðherra á ársfundi NSA
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála,- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra óskaði Nýsköpunarsjóði atvinnulífisins til hamingju með góða útkomu síðasta árs í erindi sínu á ársfundi sjóðsins. Vegna aðstæðna fór fundurinn fram með fjarfundabúnaði að þessu sinni.
Ráðherra fjallaði um mikilvægi nýsköpunar fyrir samfélagið og hversu mikið nýsköpun hefði minnt á sig á undanförnum vikum, sem og mikilvægi fjármagns fyrir nýsköpunarfyrirtæki og fjárfesta.
„Við erum einmitt rækilega minnt á mikilvægi nýsköpunar nú um stundir þegar við göngum í gegnum eina dýpstu efnahagskreppu sem sögur fara af. Nú þurfum við að leita nýrra leiða og virkja hugvitið til nýrra lausna. Þess vegna höfum við á undanförnum vikum spýtt í lófana og lagt okkur enn meira fram um að ýta í framkvæmd þeim málefnum sem sett voru á oddinn í nýsköpunarstefnu síðasta haust,“ sagði nýsköpunarráðherra í ræðu sinni.
Meðal þeirra aðgerða sem ráðherra vísar til er stofnun sjóðsins Kríu fyrir fjárfestingar í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum. Fyrirhugað er að Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins sjái um umsýslu sjóðsins. „Stofnun Kríu er að okkar mati mikilvæg aðgerð, ekki aðeins til að auka aðgengi sprotafyrirtæki að áhættufjármagni á fyrstu stigum, heldur einnig að stuðla að vexti og þroska fjármögnunarumhverfis hér á landi í samvinnu stjórnvalda og fjárfesta. Ég er sannfærð um að þessi stuðningur mun verða mikilvægur þáttur í því að hér vaxi upp öflugt umhverfi frumkvöðlamennsku og nýsköpunar sem síðan skili sér í öflugum þekkingariðnaði og nýjum útflutningsgreinum. Við leggjum áherslu á að frumvarp um Kríu verði samþykkt á þessu vorþingi og í ljósi Covid aðstæðna, leggjum við einnig til að framlög í Kríu verði aukin á þessu ári, að því gefnu að vísifjárfestar óski eftir framlagi úr sjóðnum.“
Þórdís Kolbrún fjallaði einnig um „stuðnings-Kríu“, en unnið er að tillögum um tímabundið mótframlag í formi lána, til efnilegra sprotafyrirtækja, sem vegna breyttra aðstæðna eru að lenda í erfiðleikum með fjármögnun á þessu ári. „Þessi stuðningur gengur undir vinnuheitinu „Stuðnings-Kría“ og vonum við að tillögur í þessa átt fái brautargengi á næstu vikum. Í þessum mikilvægu verkefnum, bæði hvað varðar Kríu og einnig í tillögum um Stuðnings-Kríu, sjáum við fyrir okkur samstarf við Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins um umsýslu þessarar fjármögnunar þó að „Kríurnar“ verði báðar sjálfstæð fjárfestingarverkefni,“ sagði nýsköpunarráðherra.