Hoppa yfir valmynd
22. ágúst 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 266/2024-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 266/2024

Fimmtudaginn 22. ágúst 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 11. júní 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. maí 2024, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 22. febrúar 2024 og var umsóknin samþykkt 18. mars 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. maí 2024, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði ekki mætt á boðaðan fund hjá stofnuninni. Mál kæranda var tekið fyrir að nýju hjá Vinnumálastofnun í kjölfar frekari skýringa frá honum. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. maí 2024, var fyrri ákvörðun staðfest með þeim rökum að sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu þrátt fyrir að ný gögn hefðu borist.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 11. júní 2024. Með bréfi, dags. 13. júní 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 2. júlí 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 3. júlí 2024. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru greinir kærandi frá því að hafa verið beittur viðurlögum í formi tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum þar sem hann hafi misst af kynningarfundi hjá Vinnumálastofnun.

Kærandi hafi fengið tilkynningu í smáskilaboðum um að boð biði hans á „Mínum síðum“. Kærandi hafi fengið aðra tilkynningu í tölvupósti um kynningarfund sem yrði haldinn þann 23. maí 2024, klukkan 9:30. Í hvorugri tilkynningunni hafi komið fram að skyldumæting væri á umræddan fund. Til þess að komast að því að um skyldumætingu væri að ræða hafi þurft að fara inn  á „Mínar síður“ og neðst í skilaboðin. Kæranda þætti eðlilegt að fram kæmi í smáskilaboðum eða tölvupósti að um skyldumætingu væri að ræða, til þess að undirstrika mikilvægi fundarins.

Kærandi hafi verið í mjög virkri atvinnuleit frá því að hann hafi misst starf sitt í desember. Hann hafi verið í virku samtali við ráðgjafa hjá Hagvangi, Intellecta og Gekkó, auk þess að hafa sótt um tugi starfa en án árangurs. Á degi kynningarfundarins hjá Vinnumálastofnun hafi kærandi verið í starfsviðtali hjá B.

Kærandi hefði vissulega mætt á fundinn ef komið hefði fram í smáskilaboðum eða tölvupósti að um skyldumætingu væri að ræða. Þess megi geta að kærandi hafi hringt í Vinnumálastofnun er hann hafi fengið tölvupóst um að umsókn hans hefði verið breytt í „Eftirlit og innheimta – frestun“ og óskað eftir því að fá boð á annan kynningarfund. Í þeim tölvupósti hafi verið gefið til kynna að nánari upplýsingar væri að finna á „Mínum síðum“ en ekki í tölvupóstinum varðandi sjálfan kynningarfundinn. Kærandi telji að efni tölvupóstsins um kynningarfundinn hjá Vinnumálastofnun hafi ekki gefið til kynna að skyldumæting væri á fundinn. Engar slíkar fullyrðingar hafi verið í tölvupóstinum eða smáskilaboðum. Sem fyrr segi hefði kærandi mætt til fundarins ef þess hefði verið getið.

Kærandi telji að viðurlög í formi tveggja mánaða biðtíma séu úr öllu samhengi miðað við það brot er hafi átt sér stað. Með því að geta þess hvorki í tölvupósti né smáskilaboðum að um skyldumætingu væri að ræða hafi Vinnumálastofnn láðst að upplýsa um mikilvægi fundarins.

Efni umrædds tölvupósts til kæranda gefi til kynna að um almennan kynningarfund hafi verið að ræða:

„Góðan dag

Þú átt skilaboð á Mínum síðum.

Efni: Kynningarfundur hjá Vinnumálastofnun 23.05.24 kl. 09:30

Kveðja, Vinnumálastofnun.“

Hefði efni póstsins verið það sama og standi í fyrstu línu skilaboðanna á „Mínum síðum“ hefði kærandi vitað að um fundarboð væri að ræða. Í skilaboðunum segi:

„Þú ert hér með boðuð/aður á Kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar, Grensásvegi 9, þann 23.05.24 kl. 09:30.“

Kærandi óski þess að viðurlög í formi tveggja mánaða biðtíma verði felld niður og að hann fái boð á næsta kynningarfund Vinnumálastofnunar.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 22. febrúar 2024. Með erindi, dags. 18. mars 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Með erindi, dags. 21. maí 2024, hafi kærandi verið boðaður á kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 23. maí 2024, klukkan 09:30. Boðun hafi verið send klukkan 15:41 þann 21. maí 2024 á skráð netfang kæranda; C, með smáskilaboðum í símanúmerið X, auk tilkynningar á „Mínum síðum“. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að um síðustu boðun væri að ræða þar sem hann hefði ekki sinnt mætingu á áður boðaðan kynningarfund sem haldinn hafi verið þann 7. maí 2024. Þá hafi kærandi verið upplýstur um að skyldumæting væri á fundinn og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Kærandi hafi ekki mætt á boðaðan fund og engin tilkynning um forföll hafi borist frá kæranda.

Með erindi, dags. 24. maí 2024, hafi verið óskað eftir skýringum á fjarveru kæranda á boðaðan kynningarfund. Skýringar hafi borist frá kæranda þann 26. maí 2024 þar sem kærandi hafi sagt að boðunin hefði farið fram hjá sér. Kærandi hafi óskað eftir að fá boðun á næsta kynningarfund sem haldinn yrði af stofnuninni.

Með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 28. maí 2024, hafi kæranda verið tilkynnt um tveggja mánaða viðurlög samkvæmt 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Þann 28. maí 2024 hafi borist frekari skýringar kæranda á fjarveru á boðaðan kynningarfund. Kærandi hafi borið því við að hann hefði ekki verið upplýstur um að skyldumæting væri á fundinn og af þeim sökum ekki mætt á boðaðan kynningarfund þann 23. maí 2024. Mál kæranda hafi í kjölfarið verið tekið fyrir að nýju með tilliti til nýrra skýringa. Það hafi verið mat stofnunarinnar að staðfesta fyrri ákvörðun, dags. 28. maí 2024, þrátt fyrir nýjar skýringar kæranda.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Á meðal skilyrða fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Samkvæmt [h-lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Ráðgjafar stofnunarinnar skuli boða atvinnuleitendur reglulega í viðtöl eftir þörfum hvers og eins atvinnuleitanda.

Á grundvelli 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Í tilfelli kæranda hafi hann verið boðaður á fund hjá stofnuninni, en samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laganna sé Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með sannanlegum hætti, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum þeirra sem kunni að hafa áhrif á rétt þeirra til greiðslu atvinnuleysisbóta. Atvinnuleitendur skuli vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. hafi komið inn í lög um atvinnuleysitryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009, en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á þá skrifstofu sína sem næst sé lögheimili viðkomandi.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 23. maí 2024. Áður hafi kærandi fengið sendar tilkynningar í tölvupósti, farsíma og á ,,Mínum síðum“ um boðun á umræddan fund. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga, komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.

Skýringar kæranda á ástæðum þess að hann hafi ekki mætt til boðaðs kynningarfundar séu efnislega samhljóða kæru til úrskurðarnefndarinnar. Kærandi segi meðal annars að fundarboð hafi farið fram hjá honum og að hann hafi ekki vitað að skyldumæting væri á fundinn. Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi verið upplýstur með fullnægjandi hætti um hvernig honum yrðu send mikilvæg skilaboð og tilkynningar. Boðun til umrædds fundar hafi borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og í þeim skilaboðum hafi komið fram að skyldumæting væri á fund, að tilkynna bæri um forföll á tiltekið netfang og möguleg viðurlög væru við því að mæta ekki á fund stofnunarinnar án gildra ástæðna.

Í ljósi alls framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með því að hafa hvorki mætt til umrædds kynningarfundar né tilkynnt um forföll hafi kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði og beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var þann 21. maí 2024 boðaður á kynningarfund hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík þann 23. maí 2024. Kæranda var greint frá því að um síðustu boðun væri að ræða, skyldumæting væri á fundinn og að forföll bæri að tilkynna á netfang Vinnumálastofnunar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ekki yrði hægt að fá nýja boðun í viðtal en ástæður forfalla yrðu sendar Greiðslustofu til skoðunar þar sem tekin yrði afstaða til mögulegra viðurlaga í formi tímabundinnar eða varanlegrar greiðslustöðvunar. Þá var kærandi hvattur til að hafa samband við stofnunina ef eitthvað væri óljóst eða ef hann vildi frekari upplýsingar. Kærandi hvorki boðaði forföll né mætti á kynningarfundinn.

Kærandi hefur gefið þær skýringar að hann hafi ekki vitað að skyldumæting væri á fundinn. Með því að geta þess hvorki í tölvupósti né smáskilaboðum að um skyldumætingu væri að ræða hafi Vinnumálastofnun láðst að upplýsa um mikilvægi fundarins. Kærandi telji að viðurlög í formi tveggja mánaða biðtíma séu ekki í samhengi við það brot sem hafi átt sér stað.

Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru í boðað viðtal hjá Vinnumálastofnun.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. maí 2024, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta