Samningur við Bretland um réttindi á sviði almannatrygginga tekur gildi
Gildistaka samningsins hefur í för með sér að nú verða evrópsk sjúkratryggingakort (EHIC), útgefin á Íslandi, tekin gild í Bretlandi á ný og bresk Global Health Insurance kort (GHIC) sömuleiðis tekin gild á Íslandi. Háskólanemendur frá EES/EFTA-ríkjum sem eru við nám í Bretlandi geta einnig framvegis sótt um endurgreiðslu á heilbrigðisgjaldi (e. immigration health surcharge) sem Bretland hefur lagt á í tengslum við umsóknir um dvalarleyfi.
Þá verður hægt að fá ellilífeyri sem ávinnst greiddan þótt búið sé í öðru samningsríki, sem og nýta sér tryggingatímabil frá öðru samningsríki að ákveðnu marki til að komast fyrr inn í almannatryggingakerfi ríkjanna þegar flutt er milli þeirra.
Samningurinn tekur til allra þeirra sem falla undir löggjöf ríkjanna og eru þar löglega búsettir er þeir ferðast eða flytja búferlum milli samningsríkjanna og byggir á hliðstæðum ákvæðum í útgöngusamningi Bretlands við Evrópusambandið.