Hoppa yfir valmynd
3. apríl 2019 Utanríkisráðuneytið

Alvarlegur matarskortur meðal 113 milljóna jarðarbúa

Ljósmynd frá Juba í Suður-Súdan: UNICEF/Campeanu - mynd

Alvarlegur matarskortur hrjáði um það bil 113 milljónir íbúa í 53 ríkjum á síðasta ári, samkvæmt nýrri sameiginlegri skýrslu Sameinuðu þjóðanna og Evrópusambandsins, sem birt var í gær. Í skýrslunni er staðhæft að þessi útbreiddi matarskortur stafi einkum af tvennu: átökum og loftslagsbreytingum. Tveir af hverjum þremur sem búa við sult draga fram lífið í aðeins átta löndum: Afganistan, Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, Eþíópíu, Nígeríu, Suður-Súdan, Súdan, Sýrlandi og Jemen.

Global Report on Food Crisis 2019“ er yfirheiti skýrslunnar en að henni standa meðal annars Matvæla- og landbúnaðarstofnun SÞ (FAO), Matvælaáætlun SÞ (WFP) og Evrópusambandið. Fram kemur í skýrslunni að hungraðir í heiminum hafi á síðustu þremur árum ævilega verið yfir hundrað milljónir talsins en þeir dreifist nú á fleiri lönd en áður.

Auk fyrrnefndra 113 milljóna manna sem búa við alvarlegan matarskort eru 143 milljónir til viðbótar í öðrum 42 löndum sem eru nærri hungurmörkum. Þeir eru þó líkast til fleiri því skortur er á tölfræðigögnum um matvælaóöryggi frá 13 ríkjum, þar á meðal bæði Norður-Kóreu og Venesúela.

Miðað við tölur frá árinu 2017 fækkaði hungruðum í heiminum um 11 milljónir milli ára. „Það er ljóst af skýrslunni að þrátt fyrir lítilsháttar fækkun í fjölda þeirra sem upplifir mikinn matarskort er þessi hópur alltof fjölmennur,“ sagði José Graziano da Silva framkvæmdastjóra FAO á tveggja daga ráðstefnu sem efnt var til í Brussel í tilefni af útgáfu skýrslunnar.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

2. Ekkert hungur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta