Fjármálastöðugleikaráð tekur til starfa
Fyrsti fundur fjármálastöðugleikaráðs fór fram í fjármála- og efnahagsráðuneytinu miðvikudaginn 10. september 2014. Fjármálastöðugleikaráð er formlegur samstarfsvettvangur stjórnvalda um fjármálastöðugleika. Ráðið er vettvangur samráðs, upplýsingaskipta og stefnumótunar vegna fjármálastöðugleika og samhæfir viðbúnað opinberra aðila við fjármálakreppu.
Í fjármálastöðugleikaráði sitja fjármála- og efnahagsráðherra, sem er formaður ráðsins, seðlabankastjóri og forstjóri Fjármálaeftirlitsins.
Helstu verkefni fjármálastöðugleikaráðs eru eftirfarandi:
- að móta opinbera stefnu um fjármálastöðugleika,
- að meta efnahagslegt ójafnvægi, áhættu í fjármálakerfinu, óæskilega hvata og aðrar aðstæður sem eru líklegar til að ógna fjármálastöðugleika,
- að skilgreina þær aðgerðir, aðrar en beitingu stjórntækja Seðlabanka Íslands í peningamálum, sem eru taldar nauðsynlegar á hverjum tíma til að hafa áhrif á fjármálakerfið í þeim tilgangi að efla og varðveita fjármálastöðugleika,
- að staðfesta skilgreiningar á kerfislega mikilvægum eftirlitsskyldum aðilum, innviðum og mörkuðum sem eru þess eðlis að starfsemi þeirra getur haft áhrif á fjármálastöðugleika.
Fyrir utan reglulega fundi kemur ráðið saman sem formlegur samráðsvettvangur stjórnvalda þegar fjármálakreppa telst yfirvofandi eða skollin á eða hætta er á atburðum sem geta valdið umtalsverðum smitáhrifum.
Eftirfarandi mál voru á dagskrá fjármálastöðugleikaráðs á fundi ráðsins:
- Starfsreglur fjármálastöðugleikaráðs
- Opinber stefna um fjármálastöðugleika
- Önnur mál