Framlög til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts
Innanríkisráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 6. desember sl. að uppgjöri framlaga til sveitarfélaga á árinu 2011 til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts á grundvelli reglugerðar, nr. 80/2001 með síðari breytingum.
Heildarúthlutun framlaganna í ár nemur 2.739,8 m.kr. Eftirstöðvar framlaganna koma til greiðslu í dag.