Drög að hollustuháttareglugerð í samráðsgátt
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur sett til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda drög að nýrri hollustuháttareglugerð sem ætlað er að koma í stað reglugerðar um hollustuhætti frá árinu 2002.
Unnið hefur verið að endurskoðun reglugerðarinnar frá árinu 2018 í samvinnu og samráði við hlutaðeigandi stofnanir og stjórnvöld. Starfshópur ráðherra með fulltrúum frá ráðuneytinu, Umhverfisstofnun og Samtökum heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi lagði fram tillögur að stefnu og áhersluatriðum á árinu 2018 sem höfð voru til hliðsjónar við endurskoðun á reglugerðinni.
Meðal helstu breytinga í drögum að nýrri hollustuháttareglugerð eru:
- Bætt er við ákvæði um skráningu og útgáfu starfsleyfis til samræmis við breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.
- Sérstakur kafli kveður á um skyldur rekstraraðila, m.a. varðandi hreinlæti og innra eftirlit.
- Ákvæði um sóttvarnavottorð og sóttvarnaundanþágur fyrir skip er ekki lengur að finna í hollustuháttareglugerð og stefnt er að því að fella þau út með þessari reglugerð og setja sér reglugerð um þau atriði, m.a. að höfðu samráði við sóttvarnalækni.
- Á grundvelli öryggissjónarmiða er fjallað sérstaklega um skipulagða afþreyingarstarfsemi.
- Kveðið er á um að leyfi forráðamanns þurfi til að heimilt sé að flúra, húðagata eða beita nálastungu á einstaklinga undir 18 ára aldri.
- Lög um kynrænt sjálfræði eru höfð til hliðsjónar.
Frestur til að skila inn umsögnum um reglugerðardrögin er til og með 21. janúar.