Hoppa yfir valmynd
5. janúar 2023 Forsætisráðuneytið

1121/2022. Úrskurður frá 19. desember 2022

Hinn 19. desember 2022 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1121/2022 í máli ÚNU 22110021.

Kæra og málsatvik

Með erindi, dags. 24. nóvember 2022, kærði A, fréttamaður hjá Stund­­inni, afgreiðslu Heilbrigðiseftirlits Suðurlands á beiðni hans um gögn. Kær­andi óskaði með erindi, dags. 30. október 2022, eftir áætlun fyrirtækisins Terra um hreinsun á svæði við Spóastaði. Vegna tafa á afgreiðslu beiðninnar vísaði kærandi málinu til úrskurðarnefndar um upp­lýsingamál.

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands afgreiddi beiðni kæranda með erindi, dags. 9. nóvember 2022. Kom þar fram að áætlun frá Terra lægi ekki fyrir hjá heilbrigðiseftirlitinu að öðru leyti en því sem fram hefði kom­ið í tölvu­pósti til kæranda hinn 17. október 2022. Í þeim tölvupóstssamskiptum hafði kærandi spurt um það hvort Terra myndi þurfa að flytja allan úrganginn á sinn kostnað eða væri nóg fyrir fyrir­tækið að hreinsa úrganginn. Svar heilbrigðiseftirlitsins var á þá leið að allur óhæfur úrgangur yrði fjar­lægður, en leitast yrði við að skilja mold og annan jarðveg eftir. Terra bæri allan kostnað af aðgerð­um.

Í kjölfar afgreiðslu Heilbrigðiseftirlits Suðurlands var málið fellt niður hjá úrskurðarnefndinni. Kær­andi vísaði málinu að nýju til úrskurðarnefndarinnar hinn 24. nóvember 2022, og vísaði til þess að hann teldi að heilbrigðiseftirlitið hefði áætlun Terra undir höndum. Því til stuðnings vísaði kærandi til tölvu­pósts sem heilbrigðiseftirlitið sendi til fulltrúa sveitarfélagsins Bláskógabyggðar í lok september 2022. Í þeim pósti hefði komið fram að ákveðið hefði verið að Terra tæki saman áætlun um hreinsun á svæðinu, þar sem m.a. skyldi koma fram áætlað umfang verkefnisins, hvert áformað væri að flytja úrganginn og áætl­uð verklok.

Málsmeðferð

Kæran var kynnt Heilbrigðiseftirliti Suðurlands með erindi, dags. 25. nóvember 2022, og heil­brigðis­eftir­litinu veittur kostur á að koma á fram­færi umsögn um kæruna. Jafnframt var þess óskað að heil­­brigðiseftirlitið léti úrskurðarnefnd um upp­lýs­inga­mál í té afrit af þeim gögnum sem kæran lýtur að.

Umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurlands barst úrskurðarnefndinni hinn 28. nóvember 2022. Í henni kem­ur fram að áætlunin hafi legið fyrir 11. nóvember 2022. Heilbrigðiseftirlitið hafi ekki í vörslum sínum sér­stakt skjal með áætlun frá Terra, heldur birtist áætlunin í starfsleyfisskilyrðum vegna land­mót­unar á Spóastöðum, sem kynnt hefðu verið á vefsíðu heilbrigðiseftirlitsins hinn 11. nóvember 2022. Í skilyrðunum kæmi m.a. fram eftirfarandi:

Markmið starfseminnar er að hreinsa svæðið af óæskilegu efni sem hefur safnast upp [svo sem af] plasti sem að mestu eru plastpottar úr garðyrkju. Áætlað heildarmagn sem um ræðir og verð­ur tekið til hreinsunar af svæðinu er um 100 tonn, þar af [nemur plast u.þ.b.] 10%. Verk­taki notar bún­að til að flokka þann úrgang frá og verður hann fluttur í Álfsnes til urð­unar. Að því lokn­u[…] verði gengið frá svæðinu þannig að það sé tilbúið til ræktunar og falli að umhverf­inu.

Umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurlands var kynnt kæranda með bréfi, dags. 28. nóvember 2022, og honum veittur kostur á að koma á fram­færi frekari athugasemdum. Frekari athugasemdir bárust ekki.

Niðurstaða

Kærandi í máli þessu telur að hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands liggi fyrir áætlun Terra um hreinsun á svæði við Spóastaði. Heilbrigðiseftirlitið vísar til þess að slík áætlun liggi ekki fyrir að öðru leyti en sem kemur fram í starfsleyfisskilyrðum vegna landmótunar á Spóastöðum sem kynnt voru á vef heilbrigðis­eftirlitsins í nóvember 2022.

Réttur til aðgangs að gögnum samkvæmt upplýsingalögum nær aðeins til fyrirliggjandi gagna, sbr. orða­­lag ákvæða 1. mgr. 14. gr. og 1. mgr. 5. gr. laganna. Í athugasemdum við 5. gr. í frumvarpi til gild­­andi upplýsingalaga er tekið fram að orðin „fyrirliggjandi gögn“ beri m.a. að skilja sem svo að réttur til aðgangs að gögnum hjá stjórnvöldum nái aðeins til þeirra gagna sem til eru og fyrir liggi á þeim tíma­­punkti þegar beiðni um aðgang sé sett fram og í þeirri mynd sem þau séu á þeim tíma. Þeim sem falla undir lögin sé því ekki skylt á grundvelli laganna að útbúa ný skjöl eða önnur gögn, sbr. 3. málsl. 1. mgr. 5. gr. Ef takmarkanir 6.–10. gr. laganna á upplýsingarétti eigi aðeins við um hluta gagns skuli þó veita aðgang að öðrum hlutum þess, sbr. 3. mgr. 5. gr. sömu laga.

Úrskurðarnefndin hefur ekki forsendur til þess að rengja þá staðhæfingu Heilbrigðiseftirlits Suður­lands að áætlun Terra liggi ekki fyrir. Þá hefur heilbrigðiseftirlitið jafnframt vísað kæranda á vef­síðu sína þar sem upplýsingar um málið eru aðgengilegar, sbr. 2. mgr. 19. gr. upplýsingalaga. Af ákvæðum upp­lýsingalaga leiðir að úrskurðarvald úrskurðarnefndar um upplýsingamál er afmarkað við að fjalla um réttmæti synjunar á beiðni um aðgang að fyrirliggjandi gögnum samkvæmt lögunum og synjunar á beiðni um að afhenda fyrirliggjandi gögn á tiltæku formi. Þegar svo háttar til að gögn eru ekki fyrir­liggj­andi er ekki um að ræða synjun á aðgangi að gögnum sem kæranleg er til nefndarinnar á grundvelli 1. mgr. 20. gr. laganna. Er því óhjákvæmilegt að vísa kæru þessari frá úrskurðarnefndinni.

Úrskurðarorð

Kæru A, dags. 24. nóvember 2022, er vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

Hafsteinn Þór Hauksson, formaður
Kjartan Bjarni Björgvinsson
Sigríður Árnadóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta