Mál nr. 34/2017 Úrskurður 21. ágúst 2017
Mál nr. 34/2017 Eiginnafn: Gnádís
Hinn 21. ágúst 2017 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 34/2017 en erindið barst nefndinni 20. júlí.
Eiginnafnið Gnádís (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Gnádísar og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Gnádís (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.