Hoppa yfir valmynd
3. júní 2014 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Norðurljósarannsóknarstöð að Kárhóli í Reykjadal

Hafin er bygging á nýrri rannsóknarstöð. Hún er liður í samkomulagi milli RANNÍS og Heimskautastofnunar Kína í Shanghæ (Polar Research Institute of China – PRIC)

Fyrsta skóflustunga norðurljósa rannsóknir
Karholar

Fyrsta skóflustungan að Norðurljósarannsóknarstöð á Kárhóli í Reykjadal var tekin 2. júní sl. en uppbygging stöðvarinnar er liður í samkomulagi milli Rannsóknarmiðstöðvar Íslands – RANNÍS og Heimskautastofnunar Kína Í Shanghæ (Polar Research Institute of China – PRIC).

Íslensk sjálfseignarstofnun, Aurora Observatory, sem stofnuð var á síðasta ári, mun annast uppbyggingu og rekstur allrar aðstöðu á Kárhóli en stofnaðilar eru atvinnuþróunarfélag Þingeyinga og Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar, Atvinnuefling Þingeyjarsveitar, Kjarni ehf og Arctic Portal.

Byggð verður rúmlega 700 m2 bygging sem hýsa mun rannsóknartæki og vinnuaðstöðu fyrir vísindamenn auk gestastofu fyrir ferðamenn með sýningarrými og litlum ráðstefnusal til kynningar á norðurljósunum og öðrum háloftafyrirbærum. Rannsóknarstarfsemi hófst haustið 2013 en starfsemi stöðvarinnar útvíkkar frekar þær mælingar sem þegar eru stundaðar hér á landi þar sem fyrirhuguð tæki og búnaður geta gefið ítarlegri upplýsingar um eiginleika norðurljósa en núverandi búnaður.

Ýmsar stofnanir munu geta tekið þátt í rannsóknum stöðvarinnar, m.a. Veðurstofa Íslands, Raunvísindastofnun Háskóla Íslands, Háskólinn á Akureyri, Norðurslóðanet Íslands og Heimskautastofnunin, stofnun um jarðvísindi í Kína (CAS), vísinda- og tækniháskóli Kína auk annarra þarlendra stofnana.

Í framhaldi af skóflustungu að stöðinni hefst tveggja daga málþing á Akureyri, þar sem vísinda- og fræðimenn frá Norðurlöndunum og Kína, auk fulltrúa ríkja Norðurskautsráðsins munu fjalla um málefni Norðurslóða, m.a. alþjóðasamvinnu, efnahagslíf og alþjóðavæðingu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta