Mál nr. 52/2014, úrskurður 30. júlí 2014
Mál nr. 52/2014
Eiginnafn: Hrafnfífa
Hinn 30. júlí 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 52/2014 en erindið barst nefndinni 2. júlí:
Eiginnafnið Hrafnfífa (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Hrafnfífu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Hrafnfífa (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.