UNICEF bregst við útbreiðslu COVID-19 á Indlandi og kallar eftir stuðningi
UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, kallar eftir aukinni neyðaraðstoð til þess að bregðast við hörmungunum sem nú blasa við á Indlandi. Þar er kórónaveiran stjórnlaus um þessar mundir og um 300 þúsund einstaklingar smituðust hvern dag síðastliðna viku. „Það jafngildir að nánast allir íbúar Íslands smitist af COVID-19 á hverjum einasta degi. Dauðsföll á hverjum sólarhring skipta þúsundum og spítalar eru löngu orðnir yfirfullir og geta ekki tekið við fleiri sjúklingum. Áhyggjuefni er einnig að börn og ungmenni eru að veikjast í meira mæli,“ segir í frétt frá UNICEF.
UNICEF bregst meðal annars við hörmungunum með því að útvega súrefnisbirgðir, COVID-19 próf, hlífðarbúnað og önnur nauðsynleg hjálpargögn. Neyðarsjóður UNICEF bregst við þegar hættuástand skapast eins og á Indlandi, og hægt er að styðja sjóðinn með frjálsu framlagi hér.
Önnur bylgja faraldursins á Indlandi hófst í febrúar, mun skæðari en sú fyrri. UNICEF og önnur hjálparsamtök eru í kapphlaupi við tímann þar sem spítalar eru yfirfullir og súrefni og nauðsynlegar lækningavörur að klárast. „Afleiðingar faraldursins eru skelfilegar fyrir börn í landinu sem hafa misst foreldra og fjölskyldumeðlimi og komast ekki undir læknishendur ef þau veikjast. Óttast er að á Indlandi verði flest dauðsföll barna undir fimm ára vegna raskana á heilbrigðisþjónustu í landinu ef ekki er brugðist við,“ segir UNICEF.
Starfsfólk UNICEF á 14 svæðisskrifstofum víðs vegar á Indlandi vinnur að því að bregðast við ástandinu og áhrifum þess á börn. Í forgangi er að:
Útvega og koma upp búnaði til súrefnisframleiðslu á spítölum til þess að meðhöndla mjög alvarleg tilfelli;
- Útvega nákvæmar skimunarvélar á svæðum sem hafa farið hvað verst úti í útbreiðslu;
- Styðja við og vernda samfélög og framlínustarfsfólk til þess að hægt sé að koma í veg fyrir alvarlega röskun á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu fyrir börn;
- Styðja við áframhaldandi dreifingu á bóluefnum gegn COVID-19 í gegnum COVAX-samstarfið.
Brýnna aðgerða er þörf á Indlandi og UNICEF kallar því eftir auknum stuðningi til þess að útvega og koma þessum lífsnauðsynlega búnaði og hjálpargögnum til skila.