Úrskurður nr. 374/2017
KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA
Þann 27. júní 2017 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 374/2017
í stjórnsýslumáli nr. KNU17050047
Kæra [...]
á ákvörðun
Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Þann 24. maí 2017 kærði […], fd. […], ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 3. maí 2017, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Þýskalands.
Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Til vara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
II. Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 15. mars 2017. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Þýskalandi. Þann 17. mars 2017 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Þýskalandi, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þann 23. mars 2017 barst svar frá þýskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli b-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 3. maí 2017 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Þýskalands. Kærandi kærði ákvörðunina þann 24. maí 2017 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 7. júní 2017 ásamt læknisvottorði.
III. Ákvörðun Útlendingastofnunar
Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Þýskalands. Lagt var til grundvallar að Þýskaland virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Þýskalands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá var það mat stofnunarinnar að sérstakar aðstæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga væru ekki til staðar í málinu. Kærandi var ekki talinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Þýskalands, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
IV. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi komið hingað til lands eftir að honum hafi verið haldið gegn vilja sínum í Þýskalandi og þvingaður til að sækja um alþjóðlega vernd þar í landi. Kærandi hafi dvalið einum degi lengur en vegabréfsáritun hans hafi leyft í Þýskalandi sökum sjúkdóms síns og hafi í kjölfarið verið hnepptur í varðhald er hann hugðist yfirgefa landið. Á meðan kærandi hafi verið fastur í Þýskalandi hafi dvalarleyfi hans í […] runnið út en hann hafi dvalið þar í landi í kjölfar flótta síns frá heimaríki. Í viðtali við Útlendingastofnun kemur fram að kærandi hafi gert athugasemdir við að fara aftur til Þýskalands þar sem hann óttist að vera sendur til heimaríkis. Ástæða flótta kæranda frá heimaríki hafi verið ofsóknir […] en kærandi hafi aðstoðað […] vin sinn við að flýja […]. Í gögnum málsins séu upplýsingar um […] kæranda en í ákvörðun Útlendingastofnunar sé enga umfjöllun að finna um sjúkdóm hans. Stofnunin hafi því ekki uppfyllt skyldur sínar skv. 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga en sjúkdómur kæranda hefði átt að koma í ljós við athugun þá sem málsgreinin mæli fyrir um. Með tilliti til sjúkdóms kæranda og þess alvarlega ofbeldis sem hann hafi orðið fyrir að ósekju í heimaríki sé kærandi í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.
Kærandi vísar til þess í greinargerð að 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kveði aðeins á um heimild til handa stjórnvöldum til að synja kæranda um efnismeðferð umsóknar sinnar um alþjóðlega vernd en ekki skyldu. Meginregla laga um útlendinga sé að taka skuli allar umsóknir um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar nema að undantekningarreglur laganna eigi við og rétt þyki að beita þeim en í samræmi við almennar lögskýringarreglur skuli túlka undantekningarreglur í lögum þröngt.
Kærandi byggir á því í greinargerð að ótækt sé að beita c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og að taka eigi mál hans til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. sömu laga. Vísar kærandi m.a. til lögskýringagagna að baki ákvæðinu. Þá sé með vísan til eftirfarandi umfjöllunarefnis greinargerðarinnar og heilsufars kæranda byggt á því að fyrir hendi séu slíkar sérstakar ástæður sem skyldi íslensk stjórnvöld til að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.
Í greinargerð kæranda er gerð grein fyrir aðstæðum og réttindum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi og í því sambandi vísað til ýmissa alþjóðlegra skýrsla, m.a. ákalls Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá mars 2015. Meðal annars kemur fram að álag á hæliskerfi Þýskalands sé mikið og vegna mikils fjölda einstaklinga sem sæki þar um vernd séu margar móttökumiðstöðvar afar fjölmennar og jafnvel yfirfullar auk þess sem iðulega sé aðbúnaður ekki fullnægjandi, t.d. varðandi hreinlæti. Umsækjendur njóti takmarkaðrar lögfræðiaðstoðar við meðferð máls þeirra í Þýskalandi og gjafsókn ekki tryggð vilji umsækjendur fara með mál sitt fyrir dómstóla. Þá hafi að undanförnu borist fréttir af auknum fordómum og andúð í garð flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi. Árásir á heimili umsækjenda hafi stóraukist og hægri öfgahópar fengið byr undir báða vængi.
Þá telur kærandi með tilliti til málavaxta að hann standi frammi fyrir raunverulegri hættu á að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð sem brjóti í bága við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu verði hann sendur til Þýskalands. Þessi sérstaða felist aðallega í því álagi sem sé á þýska hæliskerfinu og að hlutfallslega fáum […] umsækjendum um alþjóðlega vernd sé veitt vernd í Þýskalandi. Að mati kæranda sé það nærri óumdeilt að sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda verði tekin til efnismeðferðar hérlendis og beri stjórnvöldum í slíkum tilvikum, með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, skylda til þess að gera slíkt.
Kærandi gerir jafnframt athugasemdir við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun, einkum að rannsókn málsins hafi ekki verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Fyrir liggur í máli þessu að þýsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli b-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Þýskalands er byggt á því að kærandi sé með umsókn um alþjóðlega vernd til meðferðar þar í landi.
Í c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að umsókn um alþjóðlega vernd skv. 37. gr. skuli tekin til efnismeðferðar nema heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda. Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.
Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum jafnframt að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Þýskalandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:
· Asylum Information Database, Country Report: Germany (European Council on Refugees and Exiles, mars 2017),
· Report by Nils Muižnieks Commissioner for Human Rights of the Council Of Europe Following his Visit to Germany on 24th April and from 4 to 8 May 2015 (Council of Europe: Commissioner for Human Rights, 1. október 2015),
· Germany 2016 Human Rights Report (United States Department of State, 3. mars 2017),
· Amnesty International Report 2016/17 - Germany (Amnesty International, 22. febrúar 2017),
· Freedom in the world 2016 – Germany (Freedom House, 11. mars 2016).
Í ofangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eiga rétt á viðtali áður en ákvörðun er tekin í máli þeirra hjá þýsku útlendingastofnuninni (þ. Bundesamt für Migration und Flüchtlinge). Umsækjendur sem fengið hafa synjun á umsókn sinni hjá útlendingastofnun geta kært niðurstöðuna til sérstaks stjórnsýsludómstóls. Fái umsækjendur synjun á umsókn sinni hjá útlendingastofnun eða stjórnsýsludómstól eiga þeir möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd hjá útlendingastofnun. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafa breyst í máli hans eða verulegir annmarkar voru á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Umsækjendur geta borið mál sitt undir þýska dómstóla sé viðbótarumsókn þeirra synjað. Jafnframt eiga umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmálans.
Þýskaland er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Af framangreindum gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi má ráða að umsækjendur eiga rétt á húsnæði og mataraðstoð. Að sama skapi er umsækjendum um alþjóðlega vernd tryggður aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu í þýskum lögum. Þá tryggja lögin rétt umsækjenda um alþjóðlega vernd til að fá lyf eða annað sem nauðsynlegt sé til að koma í veg fyrir eða takast á við afleiðingar sjúkdóms.
Þá telur kærunefnd ljóst af þeim gögnum sem nefndin hefur kynnt sér að þýsk stjórnvöld uppfylli skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð við umsækjendur um alþjóðlega vernd skv. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Að sama skapi bendir ekkert til þess að […] umsækjendum sé synjað sjálfkrafa um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eða þeir endursendir til heimaríkis án þess að leyst sé úr málum þeirra á einstaklingsgrundvelli.
Athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending umsækjenda um alþjóðlega vernd til Þýskalands brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að umsækjendum um alþjóðlega vernd séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Þýskalandi bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Þýskalands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.
Samkvæmt 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga teljast einstaklingar vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu ef þeir, vegna tiltekinna persónulegra eiginleika eða aðstæðna hafa sérþarfir sem taka þarf tillit til við meðferð máls eða þeir geta ekki að fullu eða með engu móti nýtt sér rétt eða uppfyllt skyldur sem kveðið er á um í lögum þessum án aðstoðar eða sérstaks tillits. Sem dæmi um einstaklinga í sérstaklega viðkvæmri stöðu nefnir ákvæðið fólk með geðraskanir eða geðfötlun, alvarlega veika einstaklinga og einstaklinga sem hafa orðið fyrir alvarlegu andlegu, líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi. Fram hefur komið í málinu að kærandi sé […] sbr. læknisvottorð dags. 24. maí 2017. […]. Að mati kærunefndar er kærandi ekki í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga þar sem þau veikindi sem kærandi hefur lýst ná ekki þeim alvarleikaþröskuldi sem framangreint ákvæði gerir kröfu um. Þó er tekið tillit til þess við meðferð málsins að kærandi glími við veikindi.
Af framangreindum skýrslum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi kemur fram að umsækjendur eiga rétt á því að fá nauðsynlega læknisþjónustu þeim að kostnaðarlausu. Í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í Þýskalandi leggur kærunefnd til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti leitað sér heilbrigðisþjónustu við hæfi þar í landi. Það er því mat kærunefndar, að teknu sérstöku tilliti til kæranda, þar á meðal í ljósi veikinda hans, að endursending kæranda til Þýskalands sé ekki í andstöðu við 42. gr. laga um útlendinga.
Heilsufar er einn þeirra þátta sem stjórnvöldum ber að líta til við mat á því hvort aðstæður umsækjanda um alþjóðlega vernd teljist sérstakar í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og mæli þannig með því að umsókn hans verði tekin til efnismeðferðar. Fara þarf fram heildstætt mat á aðstæðum umsækjanda þar sem litið er til heilsufarsupplýsinga og upplýsinga um þær aðstæður sem bíða kæranda í viðtökuríki, þ.m.t. hvort sú heilbrigðisþjónusta sem umsækjandi hefur aðgang að í viðtökuríki sé fullnægjandi. Kærunefnd leggur áherslu á að mat á því hvort heilsufar umsækjanda teljist sérstakar ástæður er ekki bundið við skoðun á heilbrigðiskerfi móttökuríkis heldur þarf matið að fara fram á einstaklingsgrundvelli með hliðsjón af atvikum máls. Meðal þeirra atvika sem sérstaklega þarf að líta til eru áhrif flutnings til viðtökuríkis á heilsufar umsækjanda að teknu tilliti til aðstæðna við flutning, sbr. einkum 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Verði niðurstaða heildstæðs mats á atvikum málsins sú að gögn málsins bendi eindregið til þess að framkvæmd synjunar á efnismeðferð umsóknar komi til með að hafa verulegar og óafturkræfar neikvæðar afleiðingar á andlega eða líkamlega heilsu umsækjanda telur kærunefnd að taka beri slíkar umsóknir til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda sé þá öruggt að einstaklingur verði ekki fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð við framkvæmd slíkrar ákvörðunar, sbr. 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 68. gr. stjórnarskrárinnar.
Í læknisvottorði, dags. 24. maí 2017, kemur fram að sjúkdómur kæranda komi að engu leyti í veg fyrir að hann geti ferðast. […]. Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að framkvæmd synjunar á efnismeðferð umsóknar hans hafi í för með sér verulegar og óafturkræfar afleiðingar fyrir heilsufar hans. Meðal annars er litið til þess að kærandi er ekki í virkri meðferð vegna sjúkdóms síns og þess að óhætt sé fyrir kæranda að ferðast að mati læknis. Í ljósi aðstæðna í Þýskalandi og að teknu tilliti til veikinda kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Hins vegar beinir kærunefndin því til Útlendingastofnunar að tryggja að þýsk stjórnvöld verði upplýst, fyrir endursendingu kæranda, um heilsufar hans í samræmi við 32. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.
Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 27. mars 2017 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 15. mars 2017.
Vegna athugasemdar kæranda um að niðurstöður Útlendingastofnunar hafi ekki verið studdar nægum gögnum og að stofnunin vísi aðeins til fárra heimilda sem séu orðnar úreltar tekur kærunefnd fram að rannsóknarreglan í 10. gr. stjórnsýslulaga mælir fyrir um að stjórnvald afli þeirra gagna sem eru nauðsynleg svo mál sé nægjanlega upplýst. Reglan gerir kröfu um rannsókn sem er fullnægjandi grundvöllur ákvörðunar stjórnvalds en gerir hvorki kröfu um að aflað sé allra upplýsinga sem varpað gætu ljósi á málið né að stjórnvald afli ófáanlegra gagna. Þá segir í 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga að við meðferð umsókna um alþjóðlega vernd skuli stjórnvöld afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga. Samkvæmt framansögðu er gerð krafa um rannsókn stjórnvöld sem er fullnægjandi grundvöllur ákvörðunar stjórnvalds. Kærunefnd útlendingamála hefur skoðað gögn varðandi aðstæður í Þýskalandi og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun varðandi aðbúnað og málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi. Er það afstaða kærunefndar að ekkert bendi til þess að slíkur ágalli hafi verið á rannsókn Útlendingastofnunar að þessu leyti þannig að fella beri ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi.
Þá gerir kærandi athugasemd við að engin frekari rannsókn hafi farið fram á því að kærandi […]. Í læknisvottorði, dags. 27. mars 2017, kemur fram að kærandi hafi gengist undir skyldubundna læknisskoðun við komu til landsins, sbr. 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun kom ekki fram í framangreindri læknisskoðun að kærandi væri […]. Jafnframt kom ekkert fram um sjúkdóm kæranda við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun. Í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 17. mars 2017 kvaðst kærandi vera við góða líkamlega og andlega heilsu auk þess sem hann kvaðst ekki vera haldinn sjúkdómum né þurfa á lyfjum að halda. Enn fremur kvaðst kærandi í viðtali hjá stofnuninni þann 27. mars 2017 vera við ágæta heilsu en greindi þó frá því að hann hefði [...]. Með hliðsjón af framangreindum vitnisburði kæranda og fyrirliggjandi læknisvottorði er það mat kærunefndar að að gögn málsins sem lágu fyrir hjá Útlendingastofnun þegar ákvörðun var tekin hafi ekki kallað á frekari rannsókn á heilsufari kæranda. Meðal annars er litið til þess að kærandi var í tveimur viðtölum spurður út í heilsufar sitt og þannig gefinn kostur á að greina frá því að hann væri […]. Að mati kærunefndar er ljóst að Útlendingastofnun hafi ekki verið kunnugt um sjúkdóm kæranda þegar stofnunin tók ákvörðun í máli hans og ekkert í þeim gögnum sem lágu fyrir hjá stofnuninni þegar ákvörðun var tekin sem benti til þess að frekari rannsóknar væri þörf á heilsufari kæranda, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga og eftir atvikum 7. gr. sömu laga. Það er jafnframt mat kærunefndar að við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun hafi kæranda, á fullnægjandi hátt, verið gefinn kostur á að koma á framfæri þeim málsatvikum sem gætu haft verulega þýðingu við úrlausn málsins, sbr. 22. gr. stjórnsýslulaga. Telur kærunefnd því ekki tilefni til að gera athugasemd við rökstuðning Útlendingastofnunar í málinu. Varakröfu kæranda um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju er því hafnað.
Í máli þessu hafa þýsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Þýskalands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Anna Tryggvadóttir
Erna Kristín Blöndal Þorbjörg Inga Jónsdóttir