Mannanafnanefnd, úrskurðir 6. júní 2007
FUNDARGERÐ
Ár 2007, miðvikudaginn 6. júní, var haldinn fundur í mannanafnanefnd. Fundurinn fór fram að Neshaga 16, Reykjavík. Mætt voru Ágústa Þorbergsdóttir, Baldur Sigurðsson og Kolbrún Linda Ísleifsdóttir. Neðangreind mál voru tekin fyrir:
2. Mál nr. 16/2007 Eiginnafn: Siv (kvk.)
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Í máli þessu er óskað endurupptöku máls nr. 86/2006 en í því máli hafði verið óskað eftir samþykki mannanafnanefndar fyrir eiginnafninu Siv (kvk.). Með úrskurði, uppkveðnum þann 29. desember 2006, hafnaði nefndin beiðninni með ítarlegum rökstuðningi þar sem eiginnafnið Siv (kvk.) teljist ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og nafnið (rithátturinn) hafi ekki áunnið sér hefð í málinu.
Úrskurðarbeiðendur hafa ekki lagt fram nein þau gögn eða málsástæður sem gefa tilefni til endurupptöku máls nr. 82/2006 og ekki eru fyrir hendi þau atvik sem tilgreind eru í 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Máli þessu er því vísað frá.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Siv (kvk.) er vísað frá.
3. Mál nr. 23/2007 Eiginnafn: Malia (kvk.)
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Öll skilyrði 1., 2. og 3. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi:
1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. (Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu).
2. Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.
3. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Þegar svo háttar að eiginnafn uppfyllir ekki þau skilyrði, sem tilgreind eru í 1. og 3. málslið 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996, þ.e. tekur ekki íslenska eignarfallsendingu og/eða telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls, er unnt að samþykkja nafnið á mannanafnaskrá ef það telst hafa áunnið sér hefð. Hins vegar heimila mannanafnalög ekki að unnt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá á grundvelli hefðar ef nafnið brýtur í bág við íslenskt málkerfi, sbr. 2. málslið 1. mgr. 5. gr. sömu laga.
Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast almennum ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 14. nóvember 2006 og sem eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:
1. Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
a. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
b. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
c. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
d. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;
e. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.
2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
3. Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningar-helgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.
Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá er enginn Íslendingur skráður með eiginnafnið Malia og því er ekki hefð fyrir þessum rithætti, sbr. ofangreindar vinnulagsreglur.
Rithátturinn -ia í Malia er ekki í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls. Í sambærilegum nöfnum er ritað
–ía, sbr. María og Soffía. Rithátturinn Malía væri hin eðlilega íslenska mynd nafnsins. Eiginnafnið Malia uppfyllir þar af leiðandi ekki öll ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn og því er ekki mögulegt að fallast á það.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið og ritháttinn Malia (kvk.) er hafnað.
4. Mál nr. 24/2007 Eiginnafn: Álfar (kk.)
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Eiginnafnið Álfar (kk.) tekur beygingu í eignarfalli, Álfars, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Nafnið beygist þannig í aukaföllum: Álfar – Álfar – Álfari - Álfars.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Álfar (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
5. Mál nr. 25/2007 Eiginnafn: Gísla (kvk.)
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Eiginnafnið Gísla (kvk.) tekur beygingu í eignarfalli, Gíslu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Gísla (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
6. Mál nr. 26/2007 Millinafn: Austan
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Millinafnið Austan er dregið af íslenskum orðstofnum, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Millinafnið Austan uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga.
Úrskurðarorð:
Beiðni um millinafnið Austan er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
8. Mál nr. 28/2007 Eiginnafn: Ótta (kvk.)
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Eiginnafnið Ótta (kvk.) tekur beygingu í eignarfalli, Óttu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Ótta (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
9. Mál nr. 29/2007 Eiginnafn: Debora (kvk.)
Eiginnafn: Nenna (kvk.)
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Öll skilyrði 1., 2. og 3. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi:
1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. (Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu).
2. Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.
3. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Þegar svo háttar að eiginnafn uppfyllir ekki þau skilyrði, sem tilgreind eru í 1. og 3. málslið 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996, þ.e. tekur ekki íslenska eignarfallsendingu og/eða telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls, er unnt að samþykkja nafnið á mannanafnaskrá ef það telst hafa áunnið sér hefð. Hins vegar heimila mannanafnalög ekki að unnt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá á grundvelli hefðar ef nafnið brýtur í bág við íslenskt málkerfi, sbr. 2. málslið 1. mgr. 5. gr. sömu laga.
Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast almennum ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 14. nóvember 2006 og sem eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum. Reglur þessar öðluðust gildi 1. desember 2006:
1. Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
a. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
b. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
c. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
d. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;
e. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.
2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
3. Tökunafn getur verði hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafn-mynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.
Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá eru sex íslenskar konur skráðar með eiginnafnið Debora (fyrra og síðara nafn) og er sú elsta fædd hér á landi árið 1910. Eiginnafnið Debora telst því hafa áunnið sér hefð í samræmi við 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn og c-lið vinnulagsreglna mannanafnanefndar frá 14. nóvember 2006. Eiginnafnið Debora tekur beygingu í eignarfalli, Deboru, og uppfyllir þar af leiðandi öll ákvæði 5. gr. áðurnefndra laga. Debora telst vera annar ritháttur eiginnafnsins Debóra og skal fært sem slíkt á mannanafnaskrá.
Eiginnafnið Nenna (kvk.) tekur beygingu í eignarfalli, Nennu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Debora (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá ásamt eignarfallsmynd þess, Deboru, og sem ritmynd eiginnafnsins Debóra.
Beiðni um eiginnafnið Nenna (kvk.) er einnig samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
10. Mál nr. 30/2007 Eiginnafn: Hrafntýr (kk.)
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Eiginnafnið Hrafntýr (kk.) tekur beygingu í eignarfalli, Hrafntýs, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Nafnið beygist þannig í aukaföllum: Hrafntýr - Hrafntý - Hrafntý - Hrafntýs.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Hrafntýr (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.