Mál nr. 144/2022 Úrskurður 30. nóvember 2022
Mál nr. 144/2022 Aðlögun kenninafns: Jesúsdóttir
Hinn 30. nóvember 2022 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 144/2022.
Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 9. nóvember 2022, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni xxx um að vera kennd til föður síns, Jesus xxx, og nafnið jafnframt lagað að íslensku máli. Óskar hún þess að kenninafn hennar verði skráð í þjóðskrá Jesúsdóttir.
Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.
Úrskurðarorð:
Fallist er á föðurkenninguna Jesúsdóttir.