Hoppa yfir valmynd
25. nóvember 2020 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Streymisfundur í dag: Nýsköpunarvistkerfi atvinnulífsins – Klasastefna í  mótun

Klasar eru efnahagsleg vistkerfi sem notaðir eru til að bæta samkeppnishæfni og verðmætasköpun jafnt fyrirtækja, atvinnugreina, landsvæða og þjóða. Undanfarna mánuði hefur markvisst verið unnið að mótun klasastefnu fyrir Ísland og verður fullgerð stefna lögð fram í upphafi nýs árs. 

Í dag, miðvikudaginn 25. nóvember kl. 9:00 verður haldinn opinn fjarfundur þar sem farið verður yfir stöðu vinnunnar og kallað eftir umræðu og athugasemdum.

Áhorfendur geta sent inn spurningar á síðunni www.slido.com með kóðanum #klasar

Útsending frá fundinum verður m.a. á forsíðu Stjórnarráðsins (stjornarradid.is), hér fyrir neðan og á þessu veffangi. 

 

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  • Ávarp: Þórdís Kolbrún Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 

  • Innsýn í vinnu við stefnumótun: Ásta Kristín Sigurjónsdóttir framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans

  • Pallborð:

  • Gunnlaugur Jónsson, framkvæmdastjóri Fjártækniklasans

  • Kristrún Frostadóttir, aðalhagfræðingur Kviku

  • Sesselja Barðdal, framkvæmdastjóri EIMS

  • Gylfi Magnússon, prófessor við HÍ

Umræðustjóri er Ásta Kristín Sigurjónsdóttir

Hér má einnig fylgjast með fundinum

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
11. Sjálfbærar borgir og samfélög
9. Nýsköpun og uppbygging
8. Góð atvinna og hagvöxtur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta