Varnarmálaráðherrar JEF ræddu stöðuna vegna Úkraínu
Í yfirlýsingu ráðherranna tíu er fordæmd ákvörðun Rússlandsforseta um að viðurkenna sjálfstæði úkraínsku héraðanna Donetsk og Luhansk, í bága við alþjóðalög og Minsk-samkomulagið. Í yfirlýsingunni er ítrekaður stuðningur við fullveldi og friðhelgi landamæra Úkraínu og kallað eftir því að rússnesk stjórnvöld dragi úr spennu og taki aftur upp viðræður á viðeigandi vettvangi á borð við Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu og NATO-Rússlandsráðið.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sagði eftir fundinn að hljóðið hafi vissulega verið þungt í hópnum, en þar eiga aðild nokkur ríki með landamæri að Rússlandi sem búa nú við breyttan veruleika í öryggismálum. “Við þessar aðstæður er mikilvægt að við stöndum þétt við bakið á vinaþjóðum okkar og séum afgerandi í samstöðu okkar og stuðningi við þau. Það er lykilatriði að alþjóðalög, landamæri og lögsaga séu virt í samskiptum milli ríkja,” segir utanríkisráðherra.
JEF er samstarfsvettvangur tíu líkt þenkjandi Evrópuríkja í öryggis- og varnarmálum sem Bretland leiðir. Þátttaka Íslands er á borgaralegum forsendum eins og í öðru fjölþjóðasamstarfi á þessu sviði í samræmi við þjóðaröryggisstefnu Íslands.
Yfirlýsingu ráðherranna er að finna hér.