Krókaleiðir ehf. kærir ákvörðun Fiskistofu, dags. 7. júní 2012, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátsins Steina G SK-14, skipaskrárnúmer 6988.
Stjórnsýslukæra
Ráðuneytið vísar til stjórnsýslukæru frá Þorvaldi Steingrímssyni f.h. Krókaleiða ehf., Bárustíg 14, Sauðárkróki, ódags., sem barst sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu 19. júní 2012, þar sem kærð er til ráðuneytisins ákvörðun Fiskistofu, dags. 7. júní 2012, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátsins Steina G SK-14, skipaskrárnúmer 6988.
Kæruheimild er í 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

Kröfur kæranda
Kærandi krefst þess að felld verði úr gildi hin kærða ákvörðun Fiskistofu, dags. 7. júní 2012, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta til bátsins Steina G SK-14 (6988) og að lagt verði fyrir Fiskistofu að úthluta byggðakvóta til bátsins í samræmi við kröfur og málsástæður í stjórnsýslukærunni.
Málsatvik
Málsatvik eru þau að með auglýsingu, dags. 23. maí 2012, sem birt var í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu 24. sama mánaðar, auglýsti Fiskistofa eftir umsóknum um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 í nokkrum byggðarlögum, m.a. á Sauðárkróki í Sveitarfélaginu Skagafirði, en auglýsingin var byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, sbr. og 2. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012. Einnig var framangreind auglýsing birt á vefsíðu Fiskistofu og tölvupóstur með auglýsingunni sendur til viðkomandi sveitarfélaga þar sem þau voru beðin um að setja frétt um auglýsinguna inn á sínar heimasíður. Umsóknarfrestur var til og með 6. júní 2012. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hafði þá úthlutað 137 þorskígildistonnum af byggðakvóta til Sveitarfélagsins Skagafjarðar samkvæmt umsókn sveitarfélagsins á grundvelli reglugerðar nr. 1181/2011, um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2011/2012, sem skiptust á byggðarlögin Sauðárkrók, 66 þorskígildistonn og Hofsós, 71 þorskígildistonn. Úthlutunin var tilkynnt Sveitarfélaginu Skagafirði með bréfi ráðuneytisins, dags. 21. desember 2011.
Kærandi sótti um byggðakvóta fyrir bátinn Steina G SK-14 (6988), með umsókn til Fiskistofu, dags. 24. maí 2012.
Hinn 7. júní 2012 tilkynnti Fiskistofa eigendum og útgerðaraðilum báta í Sveitarfélaginu Skagafirði, m.a. á Sauðárkróki ákvarðanir sínar um úthlutun byggðakvóta til báta í byggðarlögum sveitarfélagsins. Kæranda var tilkynnt að hafnað væri umsókn hans um úthlutun byggðakvóta til bátsins Steina G SK-14 (6988). Ákvörðun Fiskistofu var byggð á 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, reglugerð nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012 og auglýsingu (V) nr. 444/2012, um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta. Í hinni kærðu ákvörðun Fiskistofu kemur fram m.a. að samkvæmt staflið c 1. gr. reglugerðar nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012 sé það skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta til skips að það hafi verið í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi þann 1. desember 2011. Skráður eigandi og útgerðaraðili ofangreinds skips hjá Fiskistofu hafi samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra, verið með lögheimili í Reykjavík á þeim tíma, og því komi ekki til úthlutunar byggðakvóta til skipsins. Einnig kom fram í ákvörðun Fiskistofu að hún væri með fyrirvara um að úrskurðir ráðuneytisins í kærumálum gætu breytt þeirri niðurstöðu sem þar kom fram.
Þá kom fram í ákvörðun Fiskistofu að hún væri kæranleg til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og að kærufrestur væri tvær vikur frá framangreindri tilkynningu um höfnun umsóknar um úthlutun.

Málsrök í stjórnsýslukæru o.fl.
Með stjórnsýslukæru, ódags. sem barst ráðuneytinu 19. júní 2012, kærði kærandi, Krókaleiðir ehf. til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins framangreinda ákvörðun Fiskistofu um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta til bátsins Steina G SK-14 (6988).
Í stjórnsýslukærunni segir m.a. að kærandi óski eftir leiðréttingu á úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 vegna bátsins Steina G SK-14 (6988). Einnig segir þar að báturinn hafi verið leigður út frá 10. júní 2011 og gerður út frá Sauðárkróki eftir það en vegna vanefnda seljanda hafi ekki verið þinglýst afsali fyrr en síðar. Stjórnsýslukærunni fylgdu tiltekin gögn, m.a. ljósrit af kaupsamningi og leigusamningi.
Með bréfi til Fiskistofu, dags. 19. júní 2012, óskaði ráðuneytið eftir umsögn Fiskistofu um stjórnsýslukæruna, staðfestu afriti af hinni kærðu ákvörðun, auk annarra gagna sem Fiskistofa kynni að hafa um málið.
Í bréfi Fiskistofu, dags. 10. júlí 2012, kemur fram m.a. að með bréfi Fiskistofu, dags. 7. júní 2012, hafi aðila málsins verið tilkynnt að ofangreint skip myndi ekki fá úthlutun af byggðakvóta Sauðárkróks fyrir fiskveiðiárið 2011/2012. Ástæða þess hafi verið að ekki hafi verið uppfyllt skilyrði stafliðar c 1. gr. reglugerðar nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012, um að skip hafi verið í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi þann 1. desember 2011. Samkvæmt opinberum skrám sem Fiskistofa hafi haft við athugun á skilyrðum fyrir úthlutun byggðakvóta Sauðárkróks hafi komið fram, sbr. fskj. nr. 7, að skráður eigandi ofangreinds skips hafi verið annað félag sem hafi ekki verið með heimilisfang í því byggðarlagi sem úthlutunin gilti um. Samkvæmt gögnum sem Fiskistofa hafði þegar úthlutunin fór fram, hafi kærandi ekki verið skráður eigandi skipsins fyrr en 10. janúar 2012 og því ekki uppfyllt skilyrði fyrir að fá úthlutað af byggðakvóta Sauðárkróks í Sveitarfélaginu Skagafirði fyrir fiskveiðiárið 2011/2012.
Umsögn Fiskistofu til ráðuneytisins fylgdu eftirfarandi gögn m.a.: 1) ljósrit af hinni kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 7. júní 2012, 2) yfirlit um úthlutun byggðakvóta á Sauðárkróki fyrir fiskveiðiárið 2011/2012, dags. 7. júní 2012, 3) yfirlit um eigendur skipsins, o.fl.
Með bréfi, dags. 10. júlí 2012, sendi ráðuneytið ljósrit af umsögn Fiskistofu til kæranda og veitti honum kost á að gera athugasemdir við umsögnina, sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Frestur til þess var veittur til og með 25. júlí 2012.
Engar athugasemdir bárust ráðuneytinu frá kæranda, Krókaleiðum ehf. um framangreinda umsögn Fiskistofu.

Rökstuðningur
I. Með bréfi, ódags. sem barst ráðuneytinu 19. júní 2012, var stjórnsýslukæra í máli þessu móttekin af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, sem fór með málefni samkvæmt lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Með forsetaúrskurði nr. 99/2012, um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti, voru sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti, iðnaðarráðuneyti og efnahags- og viðskiptaráðuneyti sameinuð í nýtt ráðuneyti, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, og tók úrskurðurinn gildi 1. september 2012. Úrskurður í máli þessu er því kveðinn upp af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem nú fer með málefni samkvæmt lögum nr. 116/2006 og tók við eldri málum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins samkvæmt þeim lögum.
II. Um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 gildir ákvæði 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Í 5. mgr. greinarinnar er ráðherra falið að setja með reglugerð almenn skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda til fiskiskipa innan einstakra byggðarlaga. Skulu þau skilyrði m.a. varða skráningarstað, skráningartíma, eignarhald, skiptingu milli fiskiskipa, lágmarksverð, tryggingar fyrir greiðslum og framkvæmd úthlutunar.
Á grundvelli framangreinds ákvæðis hefur ráðherra sett reglugerð nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012, með síðari breytingum. Í 1. gr. reglugerðarinnar eru talin upp almenn skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta en þau eru: a) að skip hafi haft leyfi til veiða í atvinnuskyni við lok umsóknarfrests, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, b) að skip hafi verið skráð í viðkomandi byggðarlagi 1. desember 2011 og c) að skip hafi verið í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi 1. desember 2011. Miðað skal við lögheimili einstaklinga samkvæmt þjóðskrá og heimilisfang lögaðila samkvæmt fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra. Þá koma fram tilteknar undantekningar frá síðastgreindri reglu í tveimur síðustu málsliðum 1. mgr. 1. gr. reglugerðar nr. 1182/2011.
Einnig eru í 4. gr. reglugerðarinnar viðmiðanir um úthlutun aflaheimilda til einstakra fiskiskipa en samkvæmt ákvæðinu er gert ráð fyrir að úthlutun aflaheimilda skuli fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla almenn skilyrði reglugerðarinnar og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið hefur staðfest, eftir því sem við á og skuli úthlutað hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðarlags á tímabilinu frá 1. september 2010 til 31. ágúst 2011. Þá segir þar að vikið skuli frá þessari takmörkun á hlut hvers fiskiskips fáist heildarhlut viðkomandi byggðarlags ekki skipt með öðrum hætti. Komi minna en 100 þorskígildiskíló í hlut fiskiskips samkvæmt framangreindum reglum fellur niður úthlutun til þess og skiptist hlutur þess milli annarra fiskiskipa frá sama byggðarlagi sem uppfylla skilyrði fyrir úthlutun í samræmi við skiptingu samkvæmt úthlutunarreglum.
Þá koma fram í reglugerðinni ákvæði um skyldu fiskiskipa til að landa afla til vinnslu í byggðarlagi, sbr. 6. gr. o.fl.

Samkvæmt 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, getur ráðherra heimilað á grundvelli rökstuddra tillagna sveitarstjórnar að sett verði sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda í einstökum byggðarlögum, enda séu þau byggð á málefnalegum og staðbundnum ástæðum og í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga. Sambærilegt ákvæði er í 2. gr. reglugerðar nr. 1182/2011.
Sett hafa verið sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í Sveitarfélaginu Skagafirði, m.a. á Sauðárkróki fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 samkvæmt framangreindu ákvæði með auglýsingu (V) nr. 444/2012, um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta, sem ekki hafa áhrif á niðurstöðu þessa máls.
Um skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta til einstakra fiskiskipa í Sveitarfélaginu Skagafirði, m.a. á Sauðárkróki fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 fer því eftir 10. gr. laga nr. 116/2006, ákvæðum reglugerðar nr. 1182/2011 og auglýsingu (V) nr. 444/2012.
Eins og gerð hefur verið grein fyrir hér að framan er það skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta til fiskiskips fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 m.a. að skip hafi verið í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi þann 1. desember 2011.
Kærandi, sem var með heimilisfang í byggðarlaginu Sauðárkróki í Sveitarfélaginu Skagafirði þann 1. desember 2011 samkvæmt fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra, keypti bátinn Steina G SK-14 (6988) með kaupsamningi, dags. 6. júní 2011. Einnig kemur fram í kaupsamningnum m.a. að báturinn skyldi afhentur sama dag. Kaupsamningnum var þinglýst þann 14. júní 2011. Þá fékk kærandi útgefið afsal fyrir bátnum þann 30. desember 2011 sem þinglýst var þann 3. janúar 2012. Þegar litið er til framanritaðs er það niðurstaða ráðuneytisins að kærandi hafi verið orðinn eigandi bátsins Steina G SK-14 (6988) þann 1. desember 2011, sbr. c-lið 1. gr. reglugerðar nr. 1182/2011.
Með vísan til framanritaðs er það mat ráðuneytisins að fella beri úr gildi hina kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 7. júní 2012, um að hafna umsókn kæranda, Krókaleiða ehf. um úthlutun af byggðakvóta Sauðárkróks í Sveitarfélaginu Skagafirði fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátsins Steina G SK-14 (6988).
Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á uppkvaðningu þessa úrskurðar en þær er að rekja til mikilla anna í ráðuneytinu.

Úrskurður
Ákvörðun Fiskistofu, dags. 7. júní 2012, um að hafna umsókn kæranda, Krókaleiða ehf., um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátsins Steina G SK-14, skipaskrárnúmer 6988, er felld úr gildi
Jafnframt er lagt fyrir Fiskistofu að taka umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta til bátsins til meðferðar að nýju í samræmi við þau sjónarmið sem koma fram í úrskurði þessum.

Fyrir hönd ráðherra
Ingvi Már Pálsson
Sigríður Norðmann