Hoppa yfir valmynd
28. ágúst 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 258/2024-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 258/2024

Miðvikudaginn 28. ágúst 2024

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 6. júní 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 28. maí 2024 um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta vegna ársins 2023.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk greiddar tekjutengdar bætur frá Tryggingastofnun ríkisins á árinu 2023. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 28. maí 2024, var kæranda tilkynnt um að endurreikningur og uppgjör tekjutengdra greiðslna fyrir árið 2023 hafi leitt í ljós ofgreiðslu bóta að fjárhæð 702.636 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 6. júní 2024. Með bréfi, dags. 19. júní 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Greinargerð stofnunarinnar barst með bréfi, dags. 9. júlí 2024, og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 10. júlí 2024. Athugasemdir bárust ekki.

II. Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að kærður sé úrskurður Tryggingarstofnunar ríkisins vegna endurreiknings almannatrygginga, þar sem kæranda sé gert að endurgreiða 702.636 kr. Þessi krafa sé tilkomin vegna vaxtagreiðslna. Þannig sé mál með vexti að sökum veikinda og mikilla skulda hafi kærandi þurft að selja húsnæðið sitt. Kærandi hafi ekki verið vinnufær eftir 67 ára aldur.

Kærandi sé með um 380.000 kr. samtals í greiðslur frá lífeyrissjóðum og Tryggingastofnun. Kærandi greiði 272.000 kr. á mánuði í húsaleigu, ásamt því að reka bíl og vera með ungling í framhaldsskóla. Kærandi geti engan veginn lifað af þessum bótum og það gangi hratt á hans höfuðstól. Kærandi hafi verið að geyma þessa peninga fyrir húsnæði, annað hvort í Búfesti eða hjá Búmönnum, en þar sem eftirspurn sé langt umfram framboð hafi það ekki gengið. Kærandi gæti þurft að bíða í eitt til tvö ár í viðbót.

Með þessari kröfu sé kæranda í raun gert ómögulegt að lifa mannsæmandi lífi. Fyrir einstakling í þessar stöðu séu elliárin niðurlæging og martröð þar sem ekki sé hægt að lifa lífinu með nokkurri reisn, eftir mikla vinnu alla ævi, til sjós og lands.

III. Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar kemur fram að kærður sé endurreikningur tekjutengdra bóta ársins 2023.

Í 30. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar sé vísað til laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, varðandi hvað skuli teljast til tekna við útreikning örorkulífeyris. Til tekna teljist tekjur samkvæmt II. kafla laga um tekjuskatt, að teknu tilliti til ákvæða sömu laga um hvað ekki teljist til tekna og frádráttarliða samkvæmt 1., 3., 4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. og 31. gr. sömu laga eða undantekninga og takmarkana samkvæmt öðrum sérlögum.

Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs, sbr. 1. mgr. 33. gr. laga um almannatryggingar. Bótaþegi beri ábyrgð á að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 47. gr. sömu laga og 3. gr. reglugerðar nr. 598/2009, um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, en þar komi fram að bótaþega sé skylt að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Að sama skapi sé bótaþega skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á greiðslur.

Í 3. mgr. 33. gr. laga um almannatryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, þá skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009. Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem fram komi í skattframtölum.

Komi í ljós við endurreikning bóta að bætur hafi verið ofgreiddar fari um það samkvæmt 34. gr. laga um almannatryggingar. Þar komi fram sú skylda Tryggingastofnunar að innheimta ofgreiddar bætur. Sú meginregla sé ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Allt árið 2023 hafi kærandi verið með ellilífeyri, heimilisuppbót og barnalífeyri. Kæranda hafi verið tilkynnt um endurreikning og uppgjör tekjutengdra greiðslna ársins með bréfi, dags. 28. maí 2024. Uppgjörið hafi leitt til 702.636 kr. ofgreiðslu að teknu tilliti til greiddrar staðgreiðslu.

Ástæða þess að endurkrafa hafi myndast sé sú að endanlegar tekjur kæranda á árinu 2023 hafi reynst hærri en tekjuáætlun á árinu hafði gert ráð fyrir. Endurreikningur byggist á upplýsingum úr skattframtölum bótaþega.

Kærandi hafi fengið senda tillögu að tekjuáætlun fyrir árið 2023 þann 13. desember 2022 ásamt bréfi þar sem komið hafi fram að tillagan hafi sýnt væntanlegar tekjur kæranda árið 2023 og að hann þyrfti að fara yfir tillöguna og leiðrétta ef hann teldi áætlunina ekki endurspegla væntanlegar tekjur ársins 2023 þar sem tekjuáætlunin væri á hans ábyrgð. Samkvæmt tillögunni hafi verið gert ráð fyrir 1.376.088 kr. í lífeyrissjóðstekjur og 6.384 kr. í vexti og verðbætur.

Við bótauppgjör ársins 2023 hafi komið í ljós að á árinu 2023 hefði kærandi verið með 1.438.656 kr. í launatekjur, 1.415.388 kr. í lífeyrissjóðstekjur og 1.707.320 kr. í vexti og verðbætur.

Tryggingastofnun sé skylt lögum samkvæmt að framkvæma endurreikning ár hvert þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Tryggingastofnun sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega, eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og hafi einnig verið staðfest fyrir dómstólum.

Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2023 hafi verið sú að kærandi hafi fengið greitt á árinu 4.683.183 kr. en hefði átt að fá greitt 3.658.186 kr. Þetta hafi leitt til ofgreiðslu að fjárhæð 702.636 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu.

Með vísun til framanritaðs telji Tryggingastofnun ekki forsendur til að breyta ákvörðun um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta ársins 2023. Stofnunin telji að miðað við fyrirliggjandi gögn sé ljóst að afgreiðsla málsins hafi að fullu og öllu verið í samræmi við lög, reglur og góða stjórnsýsluhætti.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2023.

Kærandi fékk greiddan ellilífeyri og tengdar greiðslur frá Tryggingastofnun á árinu 2023. Samkvæmt 47. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til þess að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geta haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í 22. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Í 1. mgr. ákvæðisins segir að til tekna samkvæmt III. kafla skuli telja tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, með tilteknum undantekningum. Samkvæmt 21. gr. laga um almannatryggingar skal ellilífeyrir lækka um 45% af tekjum lífeyrisþegans, sbr. 22. gr., uns lífeyririnn fellur niður. Þá segir að ellilífeyrisþegi skuli hafa 300.000 kr. almennt frítekjumark við útreikning ellilífeyris og 2.400.000 kr. sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna.

Á grundvelli 33. gr. laga um almannatryggingar ber Tryggingastofnun ríkisins að endurreikna bótafjárhæðir eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Leiði endurreikningur í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar ber Tryggingastofnun að innheimta þær samkvæmt 34. gr. laga um almannatryggingar. Sú meginregla er ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.

Við úrlausn þessa máls hefur úrskurðarnefnd velferðarmála hliðsjón af þeim lagaákvæðum og reglugerðarákvæðum sem tilgreind hafa verið hér að framan.

Samkvæmt tekjuáætlun, dags. 13. desember 2022, gerði Tryggingastofnun ráð fyrir að á árinu 2023 fengi kærandi 1.376.088 kr. í lífeyrissjóðstekjur og 6.384 kr. í fjármagnstekjur. Kærandi gerði ekki athugasemdir við tekjuáætlunina og voru greiðslur ársins greiddar út frá framangreindum tekjuforsendum út árið 2023.

Samkvæmt upplýsingum skattyfirvalda vegna tekjuársins 2023 reyndust tekjur kæranda á árinu vera 1.438.656 kr. í launatekjur, 1.415.388 kr. í lífeyrissjóðstekjur, og 1.707.320 kr. í fjármagnstekjur. Niðurstaða endurreiknings Tryggingastofnunar á tekjutengdum bótagreiðslum vegna ársins 2023 leiddi í ljós 702.636 kr. ofgreiðslu, að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kærandi hefur verið krafinn um endurgreiðslu þeirrar fjárhæðar.

Samkvæmt framangreindu reyndust launa-, lífeyrissjóðs- og fjármagnstekjur kæranda vera hærri á árinu 2023 en gert hafði verið ráð fyrir. Framangreindir tekjustofnar hafa áhrif við útreikning Tryggingastofnunar á bótafjárhæð, sbr. 22. gr. laga um almannatryggingar og 1. tölul. A-liðar og 1. tölul. C-liðar 7. gr. laga um tekjuskatt. Tryggingastofnun greiðir tekjutengdar bætur á grundvelli upplýsinga úr tekjuáætlun viðkomandi greiðsluþega. Þá ber stofnuninni lögum samkvæmt að endurreikna bætur með hliðsjón af upplýsingum skattyfirvalda og innheimta ofgreiddar bætur.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum ársins 2023.

Úrskurðarnefnd velferðarmála telur rétt benda kæranda á að hann getur freistað þess að leggja fram beiðni um niðurfellingu ofgreiddra bóta til Tryggingastofnunar á grundvelli undanþáguákvæðis 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags. Þar kemur fram að heimilt sé að falla frá endurkröfu að fullu eða að hluta ef alveg sérstakar aðstæður séu fyrir hendi. Þá skuli einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna greiðsluþega og þess hvort hann hafi verið í góðri trú um greiðslurétt sinn.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta