Dómsmálaráðherra hefur skipað Gunnar Örn Jónsson, lögreglustjóra á Norðurlandi vestra í embætti lögreglustjórans á Vesturlandi frá 7. apríl næstkomandi. Gunnar Örn var frá árinu 2015 yfirmaður ákærusviðs við embætti lögreglustjórans á Suðurlandi og staðgengill lögreglustjóra, þar til að hann tók við embætti lögreglustjóra á Norðurlandi vestra árið 2017.
Gunnar Örn útskrifaðist sem lögfræðingur árið 2003. Hann starfaði sem löglærður fulltrúi sýslumannsins á Selfossi frá 2004 til ársins 2014, þar af sem staðgengill sýslumanns frá 2008.
Efnisorð