Hoppa yfir valmynd
21. október 2022 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Fjallaskáli framtíðarinnar hlýtur hæsta styrk í síðari úthlutun Hönnunarsjóðs 2022

Styrkhafar, stjórn og ráðherra saman í Grósku - myndVíðir Björnsson

Hönnunarsjóður úthlutaði þann 20. október 20 styrkjum til ólíkra verkefna á sviði hönnunar og arkitektúrs og 10 ferðastyrki. Að þessu sinni var 17.5 milljón úthlutað en alls bárust 97 umsóknir um 218 milljónir í almenna styrki. 

Umhverfis - og náttúruvænar byggingar, íslenskt hráefni, framleiðsla, arfleifð, og alþjóðleg sókn er meðal þess sem einkennir þau verkefni sem hlutu styrki í þessari síðari úthlutun ársins.  

Fjallaskáli framtíðarinnar hlaut hæst styrkinn að þessu sinni, 2 milljónir í verkefnastyrk, um er að ræða verkefni sem Krads arkitektar eru að vinna að í samstarfi við Studio BerliNord og Teresa Himmer studio að þróun og útfærslu á fyrstu frumgerð að nýjum fjallaskála, aðlöguðum göngufólki við íslenskar aðstæ ður.

Næst hæstu styrkina hlutu Kormákur og Skjöldur, markaðs- og kynningarstyrk upp á 1.500.000 kr. sem nýtist til að koma vörulínu þeirra „Íslenskt tweed“ á erlendan markað og verkefnið Biobuilding, tilraunarannsókn og hönnunarverkefni sem er fyrsta skrefið í átt að framtíð þar sem hægt er að reisa byggingu úr íslensku hráefni, eftir Önnur Karlsdóttur, arkitekt sem hlaut 1.500.000 kr. í verkefnastyrk. 

Úthlutun Hönnunarsjóðs fór fram í Grósku þar sem Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, úthlutaði styrkjum ásamt formanni stjórnar Hönnunarsjóðs, Guðrúnu Ingu Ingólfsdóttur. 

 

 

Hér má finna allar nánari upplýsingar um úthlutunina.

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta