Kristján Þór kynnir skýrslu um fæðuöryggi Íslands
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, býður til opins fundar um skýrslu Landbúnaðarháskóla Íslands um fæðuöryggi á Íslandi fimmtudaginn 11. febrúar kl 10:15.
Fundinum verður streymt hér, á Youtube og á Facebook síðu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins
Í skýrslunni, sem unnin var að beiðni ráðherra, er ítarleg umfjöllun um innlenda matvælaframleiðslu og lagt mat á áhrif þess ef upp kæmi skortur á aðföngum sem nauðsynleg eru fyrir framleiðsluna. Einnig er fjallað um þætti sem gætu stuðlað að auknu fæðuöryggi á Íslandi.
Dagskrá:
- Ráðherra opnar fundinn
-
Jóhannes Sveinbjörnsson dósent kynnir niðurstöður skýrslunnar ásamt Þóroddi Sveinssyni deildarforseta við LBHÍ
- Spurt og svarað með skýrsluhöfundum
Hægt er að senda inn spurningar í gegnum Slido til skýrsluhöfunda með #faeduoryggi.