Ný framkvæmdastýra UN Women frá Jórdaníu
Sima Sami Bahous hefur verið skipuð ný framkvæmdastýra UN Women. Sima tekur við af Phumzile Mlambo-Ngcuka sem lét af störfum í ágúst. António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, tilkynnti skipunina í vikubyrjun.
Sima, sem er jórdönsk, hefur áratuga langa reynslu af stjórnunarstörfum bæði innan grasrótarinnar og á alþjóðavettvangi. Hún var áður fastafulltrúi Jórdaníu hjá Sameinuðu þjóðunum í New York og starfaði á svæðisskrifstofu Þróunaráætlunar SÞ í Arabaríkjunum á árunum 2012-2016.
Samkvæmt frétt frá UN Women á Íslandi hefur Sima gegnt ýmsum ábyrgðarstöðum innan jórdanska stjórnarráðsins og verið útnefnd sérlegur ráðgjafi Jórdaníukonungs. Hún er með doktorsgráðu í samskiptum og þróunarfræðum, MA próf í bókmenntum og BA gráðu í enskum bókmenntum.
Sima tekur við stöðu framkvæmdastýru UN Women af Phumzile Mlambo-Ngcuka sem gegnt hafði stöðunni frá árinu 2013.
Phumzile er kennari að mennt og með doktorsgráðu í kennslufræðum. Hún hefur lengi verið virk í kvenréttindabaráttunni, bæði í heimalandi sínu Suður Afríku og á alþjóðvettvangi. Phumzile gegndi embætti varaforseta Suður Afríku á árunum 2005 til 2008 og var virk í baráttunni gegn aðskilnaðarstefnu suður afrískra stjórnvalda á sínum yngri árum.
„Á sama tíma og UN Women á Íslandi býður Sima Bahous velkomna til starfa, kveðja samtökin Phumzile og þakka henni fyrir einstakt starf í þágu kvenna og stúlkna um allan heim,“ segir í fréttinni.