Hoppa yfir valmynd
13. janúar 2023 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 37/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 13. janúar 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 37/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU22120005

 

Beiðni um frestun réttaráhrifa í máli […]

 

 

Málsatvik

Hinn 24. nóvember 2022 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 5. september 2022, um að synja einstaklingi er kveðst heita […], vera fædd […] og vera ríkisborgari Pakistan (hér eftir nefnd aðili), um alþjóðlega vernd hér á landi ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Í tölvubréfi talsmanns aðila með beiðni um frestun réttaráhrifa, dags. 1. desember 2022, kemur fram að úrskurður kærunefndar hafi verið birtur fyrir aðila hinn 25. nóvember 2022. Sama dag og beiðni um frestun réttaráhrifa barst kærunefnd lagði aðili jafnframt fram beiðni um endurupptöku máls hennar.

Hinn 9. desember 2022 barst kærunefnd greinargerð aðila. Dagana 2., 5., 8., 12., 13., 14., 19. og 21. desember 2022 lagði aðili fram gögn til kærunefndar. Þá bárust kærunefnd frekari gögn í máli kæranda 6. desember 2022.

Aðili krefst þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað á meðan hún fer með mál sitt fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Málsástæður aðila

Í rökstuðningi aðila kemur fram að hún byggi á því að til staðar sé réttaróvissa um túlkun á hugtakinu auðkenni, um mat stjórnvalda á auðkenni umsækjenda um alþjóðlega vernd og um túlkun á ákvæði b-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Hugtakið „auðkenni“ sé hvergi skilgreint í íslenskum lögum og byggist mat stjórnvalda á hugtakinu á sjónarmiðum sem séu ekki lögfest. Aðili telur að um sé að ræða mikla lagaóvissu sem hafi ekki einungis þýðingu fyrir mál hennar heldur fjölmargra annarra umsækjenda um alþjóðlega vernd. Ekki hafi reynt á skýringu hugtaksins fyrir dómi og óumdelt sé að þörf sé á því að skýra hugtakið í lögum. Að óbreyttum lögum telur aðili að brýn þörf sé á að afla úrslausnar dómstóla um þetta atriði. Aðili telur að hagsmunir hennar af því að fá niðurstöðu dómstóla um mál sitt og hagsmunir hennar af því að dvelja áfram hér á landi meðan beðið sé eftir niðurstöðu dómstóla vegi þungt gagnvart hagsmunum tengdum skilvirkni framkvæmdar laga um útlendinga.

Aðili byggir beiðni sína um frestun réttaráhrifa á því að framkvæmd úrskurðar kærunefndar í máli hennar geti valdið henni óafturkræfum skaða. Í því samhengi sé tekið fram að þegar ákvörðun sé tekin hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar skuli fara fram heildstætt mat á hagsmunum aðila af því að fá réttaráhrifum frestað. Aðili telur að hið heildstæða mat verði meðal annars að taka til almennra og sérstæðra aðstæðna í máli hennar. Í tilviki aðila verði að taka tillit til aðstæðna ungra kvenna í Pakistan sem séu einar á ferð og án baklands sem og þeirra sérstöku aðstæðna sem bíða hennar í Pakistan.

Jafnframt byggir aðili á því að henni muni reynast erfitt með að halda sambandi við lögmann sinn hér á landi komi til endursendingar en það eitt kunni að skemma fyrir málarekstri hennar fyrir dómstólum. Þá sé ótalin öll sú fyrirhöfn og kostnaður við að snúa aftur til landsins skyldi aðili bera sigur úr býtum í komandi dómsmáli.

Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrárinnar. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. laga um útlendinga en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Niðurstaða um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar ræðst af heildstæðu mati á hagsmunum aðila af því að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað og sjónarmiðum sem mæla gegn slíkri frestun. Meðal þeirra sjónarmiða sem líta ber til við þetta mat er hvort framkvæmd úrskurðarins valdi aðila óafturkræfum skaða, hvort framkvæmdin feli í sér verulegar hindranir á aðgengi aðila að dómstólum, hvort aðstæður sem þýðingu geta haft fyrir málið hafi breyst verulega eða hvort þörf sé á sérstakri varúð, m.a. með tilliti til hagsmuna barna. Þá lítur kærunefnd til þess hlutverks stjórnvalda að tryggja skilvirka framkvæmd laga um útlendinga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til þess að heimild til frestunar réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar er undantekning frá meginreglu sem aðeins sé ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til þess að fresta framkvæmd. Réttaráhrifum úrskurðar verði því ekki frestað af þeirri ástæðu einni að úrskurðurinn verði borinn undir dómstóla heldur þurfi að liggja fyrir tilteknar ástæður í fyrirliggjandi máli svo kærunefnd fallist á slíka beiðni.

Aðili byggir beiðni sína um frestun réttaráhrifa á því að til staðar sé réttaróvissa um túlkun á hugtakinu auðkenni, um mat stjórnvalda á auðkenni umsækjenda um alþjóðlega vernd og um túlkukn á ákvæði b-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Þá telur aðili að framkvæmd úrskurðar kærunefndar útlendingamála um að hún skuli yfirgefa landið takmarki möguleika hennar til að fá endurskoðun úrskurðarins hjá dómstólum og njóta þar réttlátrar málsmeðferðar, sbr. 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar.

Ljóst er að vera aðila á landinu er ekki forsenda fyrir því að mál sem hún höfðar til ógildingar á úrskurði kærunefndar sé tækt til meðferðar hjá dómstólum. Þá hefur aðili möguleika á að gefa skýrslu fyrir dómi þótt hún sé ekki hér á landi, sbr. 2. mgr. 49. gr. og 3. og 4. mgr. 51. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Þá er það mat kærunefndar að aðili geti borið ágreiningsefni sín undir dómstóla til að fá leyst úr þeim þrátt fyrir að vera ekki stödd á landinu. Í því ljósi og með vísan til aðstæðna aðila að öðru leyti er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé ástæða til að fresta réttaráhrifum úrskurðar í máli aðila á þeim grundvelli að framkvæmd úrskurðarins valdi tjóni á málatilbúnaði hennar fyrir dómstólum eða skerði réttindi sem honum eru tryggð samkvæmt 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. einnig dóma Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. E-2434/2017 og E-6830/2020. Hvað varðar málsástæðu aðila um að í heimaríki muni vera erfitt fyrir hana að vera í sambandi við lögmann sinn á Íslandi þá vekur kærunefnd athygli á að aðgangur er að interneti í Pakistan. Þá getur aðili jafnframt átt í samskiptum við lögmann sinn í gegnum síma.

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála, sem er sjálfstæð stjórnsýslunefnd, hefur verið tekin afstaða til málsástæðna aðila varðandi umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða og komist að niðurstöðu um að synja umsókn hennar. Kærunefnd ítrekar það sem kemur fram í úrskurði í máli aðila að athugun nefndarinnar hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að ætla að aðstæður í heimaríki séu þess eðlis að endursending aðila þangað sé í andstöðu við 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd telur að gögn sem aðili lagði fram með beiðni um frestun réttaráhrifa séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að þau breyti niðurstöðu nefndarinnar varðandi þetta mat. Í samræmi við framangreint er það jafnframt mat kærunefndar að aðili eigi ekki á hættu að verða fyrir óafturkræfum skaða snúi hún aftur til heimaríkis.

Tiltölulega skammur tími er liðinn síðan nefndin úrskurðaði í máli aðila. Ekkert í gögnum málsins, þ.m.t. þeim gögnum sem fylgdu beiðni aðila um frestun réttaráhrifa, bendir til þess að aðstæður aðila eða aðstæður í ríkinu, sem vísa á aðila til, hafi breyst verulega síðan nefndin úrskurðaði í málinu á þann hátt að nefndin telji að það gæti haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Eftir skoðun á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa telur kærunefnd að athugasemdir sem þar koma fram varðandi málsmeðferð og efnislegt mat kærunefndar í málinu séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að niðurstaða kærunefndar í málinu sé haldin annmarka sem leitt gæti til ógildingar úrskurðarins.

Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að ekki sé ástæða til að fallast á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa úrskurðar kærunefndar í máli hennar.

Athygli aðila er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra ástæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

 


 

 

ÚRSKURÐARORÐ

 

Kröfu aðila er hafnað.

The appellant’s request is denied.

 

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson, varaformaður

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta