Framlagning kjörskráa
Kjörskrár vegna kosninga til Alþingis, sem haldnar verða laugardaginn 28. október 2017, skulu lagðar fram eigi síðar en 18. október 2017. Kjörskrá skal leggja fram á skrifstofu sveitarstjórnar eða á öðrum hentugum stað sem sveitarstjórn auglýsir sérstaklega.
Kjörskrá skal liggja frammi á almennum skrifstofutíma til kjördags.
Þeim sem vilja koma að athugasemdum við kjörskrá er bent á að senda þær hlutaðeigandi sveitarstjórn.
Dómsmálaráðuneytinu, 12. október 2017.