Opið samráð um evrópska reglugerð um gögn og gagnagrunna
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur hafið opið samráð um áhrif reglugerðar um gögn (e. data act), en stefnt er að því að birta tillögu tillaga um hana á fjórða ársfjórðungi 2021. Frestur til að koma að athugasemdum og sjónarmiðum um áætlunina er til og með 25. júní nk.
Gagnareglugerðin, sem svo er kölluð, mun í fyrsta lagi snúast um endurskoðun á tilskipun 96/9 en hún er um vernd gagnagrunna. Gerðin mun jafnframt snúast um að auka aðgang að og auka notkun á gögnum í þeim tilgangi að gefa bæði opinbera geiranum og einkageiranum færi á að hafa hag af notkun gagnagnóttar (e. big data), sem og gervigreindartækni.
Í tillögunni verður komið inn á þessa þætti helsta:
- Notkun hins opinbera á gögnum sem eru í varðveislu einkaaðila
- Aðgang að gögnum og notkun þeirra í viðskiptum
- Samræmi gagna
- Að þróa frekar samkeppni á markaði fyrir skýjaþjónustu
- Vernd ópersónulegra gagna í alþjóðlegum samskiptum