Hoppa yfir valmynd
7. janúar 2016 Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 4/2016

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann dags. 7. janúar 2016 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 4/2016

í stjórnsýslumáli nr. KNU15100014

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Með stjórnsýslukæru, dags. 16. október 2015, kærði […], fd. […], ríkisborgari […] (hér eftir nefnd kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 14. október 2015 um að synja henni um hæli ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f laga nr. 96/2002 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og henni breytt á þann hátt að kærandi fái réttarstöðu flóttamanns skv. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna, sbr. 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga. Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og breytt á þann hátt að kæranda verði veitt dvalarleyfi á Íslandi af mannúðarástæðum, sbr. 12. gr. f útlendingalaga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 30. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi kom hingað til lands 20. júlí 2015 og foreldrar hennar sóttu um hæli tveimur dögum síðar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Útlendingastofnun taldi ekki tilefni til að taka viðtal við kæranda. Ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 14. október 2015 um að synja kæranda um hæli, dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða og dvalarleyfi vegna sérstakra tengsla við landið, var birt foreldrum hennar þann 16. október 2015. Þau kærðu ákvörðunina þann sama dag. Greinargerð vegna kæru barst kærunefnd útlendingamála þann 3. nóvember 2015. Þann 9. desember sl. kom kærandi fyrir kærunefndina og gerði grein fyrir máli sínu, sbr. 5. mgr. 3. gr. b laga um útlendinga. Viðstaddir voru talsmaður kæranda og túlkur.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að í ljósi frásagnar foreldra kæranda og þess að ekkert í framburði foreldra kæranda benti til þess að kærandi gæti átt sjálfstæðan rétt á vernd, var ekki talið tilefni til að taka viðtal við kæranda. Við meðferð máls var litið til þess hvort kærandi væri í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem gæti haft áhrif á niðurstöðu máls. Í ljósi þess að kærandi er barn var tekið mið af því í ákvörðun. Ekkert í frásögn foreldra hennar benti til þess að hælisbeiðni kæranda væri byggð á öðrum málsástæðum en umsóknir foreldra hennar voru byggðar á. Var úrlausn um rétt kæranda til hælis því grundvölluð á framburði foreldra hennar. Með ákvörðunum Útlendingastofnunar, dags. 14. september 2015, var beiðni foreldra kæranda, […], um hæli hér á landi synjað og þeim einnig synjað um dvalarleyfi hér á landi. Jafnframt var ákveðið að foreldrum kæranda skyldi vísað frá Íslandi. Með vísan til niðurstöðu í máli foreldra kæranda, að gættum ákvæðum barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, útlendingalaga og barnaverndarlaga var það niðurstaða Útlendingastofnunar að hagsmunum kæranda væri ekki stefnt í hættu með því að hún fylgdi foreldrum sínum til […].

Var það niðurstaða Útlendingastofnunar að kæranda skyldi vísað frá landinu í samræmi við 3. mgr. 90. gr. reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga. Þá var niðurstaða stofnunarinnar að kæra skyldi ekki fresta réttaráhrifum með vísan til c-liðs 1. mgr. 32. gr. útlendingalaga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Talsmaður kæranda skilaði einni greinargerð fyrir alla fjölskylduna. Í greinargerð kærenda kemur fram að foreldrar kæranda séu […]. Stjórnmálaþátttaka hans í […] hafi haft mikil áhrif á líf fjölskyldunnar og vellíðan en hann hafi verið meðlimur í […]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi komið fram að faðir kæranda teldi sér vera mismunað vegna stjórnmálaþátttöku sinnar og hann hafi misst vinnuna vegna þessa og átt erfitt með að fá vinnu vegna óvildar í sinn garð. Hann hafi […] og verið mjög heilsuveill á árinu 2015 sem hann teldi eiga rætur að rekja til streitu og óvissu um stöðu sína og fjölskyldu sinnar. Þá teldi hann móður kæranda einnig vera mismunað vegna þessa, henni hafi einnig verið sagt upp sínu starfi. Þeim hafi borist hótanir um líflát og ofbeldi frá manni að nafni […] og hans fólki, en hann sé valdamikill maður sem sé nú við völd í […]. Þau telji sig ekki vera örugg í […] og að ástandið muni ekki skána. Þau geti ekki með nokkru móti reitt sig á aðstoð frá yfirvöldum og telja til lítils að leita frekar til lögreglu en þau hafi nú gert. Vandamálið sé stærra en svo og spillingin mikil. Þá hafi faðir kæranda tjáð sig um að hann teldi […] hafa mikil ítök í stjórnsýslu í […] og ráði að miklu leyti yfir löggæslu borgarinnar. Þá sögðu báðir foreldrar kæranda helstu ástæðu flóttans vera alvarleg veikindi bróður hennar. […]. Ennfremur sé heilbrigðiskerfið og þá sérstaklega geðheilbrigðisþjónusta í […] afar bágborin og dýrt að verða sér úti um nauðsynlega þjónustu. […].

Í greinargerð kemur fram að Útlendingastofnun hafi talið kærendur geta leitað til yfirvalda vegna aðstæðna sinna, þrátt fyrir að foreldrar kæranda hafi ítrekað lýst því yfir að aðstoð yfirvalda væri ekki raunverulegt úrræði og stutt þá yfirlýsingu með gögnum. Talsmaður kæranda telji til lítils að ætlast að kærendur geti leitað til […] yfirvalda og hlotið þar vernd, þegar fyrir liggi að umfangsmikil spilling ríki í […] og réttarkerfið standi höllum fæti. Það væri því ekki hægt að ganga út frá því að yfirvöld væru fær um að veita þegnum sínum fullnægjandi vernd með vísan til þess að gefnar hafi verið út leiðbeiningar til lögreglu og saksóknara. Það eitt og sér segi ekkert til um hvernig framkvæmdin sé í raun og veru. Helsta ástæða flótta kæranda frá […] sé vantraust á vilja og getu stjórnvalda til þess að veita þeim vernd gagnvart þeim sem hafa ofsótt foreldra hennar og að látið verði af þeirri kerfisbundnu mismunun sem hún og fjölskylda hennar hafa mátt þola.

Í tengslum við aðalkröfuna vegna kæranda og yngri bróður hennar, var sérstök athygli vakin á ákvæðum 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga, 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003 og 1. mgr. 3. gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Að mati talsmanns kæranda fór ekki fram einstaklingsbundið og sjálfstætt mat á aðstæðum kæranda í málinu, heldur hafi einungis verið stuðst við almennar upplýsingar um […] og sneitt hjá staðreyndum er varða spillingu, ofsóknir og mismunun sem fólk á hættu að verða fyrir vegna stjórnmálaþátttöku sinnar. Þá yrði að gera þá kröfu að kærunefndin meti mögulega spillingu í heimabæ kæranda og hversu líklegt sé að […] sé fær um að beita völdum sínum og áhrifum með óeðlilegum hætti svo kærendur fái ekki notið grunnmannréttinda. Telja yrði mikilvægt að úr því yrði skorið hvort kærendur ættu þess raunverulega kost að leita sér aðstoðar og fá veitta vernd í heimaríki svo þau séu ekki send í óviðunandi aðstæður. […]. Í ljósi þessa þurfi að taka umsóknir […] um hæli alvarlega og kanna vandlega hvort þeir sem hingað kæmu og óskuðu eftir hæli væru í raunverulegri þörf fyrir vernd. Í þessu samhengi vakti talsmaður kæranda athygli á 3. gr. Flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna sem leggur bann við að mismuna flóttamönnum eftir ættlandi. Einstaklingsbundið mat á aðstæðum hverju sinni sé kjarni flóttamannahugtaksins og nauðsynlegt til að unnt sé að virða hina svokölluðu non-refoulement reglu sem lögfest væri í 45. gr. útlendingalaga. Hælisumsóknir beri að meta sjálfstætt út frá hverjum einstaklingi, á grundvelli hlutlægra og nýjustu upplýsinga um stöðu mannréttinda í heimalandi og aðstæðum viðkomandi einstaklings frekar en á almennum upplýsingum um ríkið.

Til vara var sú krafa gerð að hin kærða ákvörðun yrði felld úr gildi og breytt á þann hátt að kæranda yrði veitt dvalarleyfi á Íslandi af mannúðarástæðum, sbr. 12. gr. f laga um útlendinga. Foreldrar kæranda hafi greint frá því að sonur þeirra sé […]. Foreldrar kæranda hafi greint frá því að heilbrigðiskerfið í […] stæði höllum fæti auk þess að mikil spilling sé í kerfinu og vel þekkt að læknar og hjúkrunarfræðingar taki við mútum frá fólki sem getur borgað sig fram fyrir röðina. Ljóst sé að borgurum sé mismunað á grundvelli þjóðfélagsstöðu og fjárhags. […]. Hafi þetta mikil áhrif á að fjölskyldan flúði til Íslands. Talsmaður kæranda bendir á að 12. gr. f laganna sé heimildarákvæði og ekkert útiloki stjórnvöld frá því að veita kærendum dvalarleyfi af mannúðarástæðum á grundvelli heilbrigðissjónarmiða ef þau svo kysu.

Önnur meginástæða flótta kæranda og fjölskyldu hennar frá […] sé vantraust á vilja og getu stjórnvalda til þess að veita þeim vernd gagnvart þeim sem ofsóttu föður kæranda og beittu hann kerfisbundinni mismunun sem kæmi í veg fyrir að fjölskyldan gæti lifað eðlilegu og mannsæmandi lífi. Faðir kæranda hafi leitað til lögreglunnar en hún hafi ekki getað aðstoðað hann. Af ótta um líf sitt hafi þau ekki haft annarra kosta völ en að flýja frá […]. Af þessum sökum beri að veita kæranda og fjölskyldu hennar dvalarleyfi af mannúðarástæðum samkvæmt 12. gr. f laga um útlendinga, sbr. og ákvæði 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga, 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003 og 1. mgr. 3. gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Þá vakti talsmaður athygli á ákvæði 2. mgr. 12. gr. f en þar komi fram að sérstaklega skuli taka tillit til þess ef um börn er að ræða og skuli það sem þeim er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun og bent á athugasemdir með frumvarpi til laga nr. 115/2010, en þar komi fram að til greina komi að gera minni kröfur til að börn njóti verndar og fái dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f laganna ef þau fá ekki hæli samkvæmt umsókn, eða eiga ekki rétt á dvalarleyfi á öðrum grundvelli. Í greinargerðinni segir að börn teljist til sérstaklega viðkvæms hóps hælisleitenda, hvort sem þau eru í fylgd umönnunaraðila sinna eða ekki. Í ákvörðun Útlendingastofnunar skorti rökstuðning fyrir því að hvaða marki tekið hafi verið tilhlýðilegt tillit til þeirrar verndar sem börn ættu rétt á samkvæmt ákvæðum barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, íslenskum lögum og öðrum reglum þjóðaréttar. Fram hafi komið í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum barna kæranda, að tekið hafi verið tillit til ákvæða barnasáttmálans og íslenskra laga en hvergi vísað með beinum hætti til viðeigandi lagaákvæða og ekkert minnst á þau meginsjónarmið sem ráðandi hafi verið við matið, né með öðrum hætti gerð grein fyrir því hvernig mat stofnunarinnar hafi farið fram og hvað réði niðurstöðunni.

Ljóst sé að ákvörðun Útlendingastofnunar fullnægi ekki þeim kröfum sem 22. gr. stjórnsýslulaga gerir til efni rökstuðnings stjórnvaldsákvörðunar, auk þess sem útlit sé fyrir því að stofnunin hafi við töku ákvörðunar sinnar virt að vettugi mikilvæg ákvæði ýmissa laga er kveða á um að hagsmunir barna skuli hafðir að leiðarljósi við töku ákvarðana í málum er þau varða.

Faðir kæranda kvaðst ekki geta flutt sig um set innan […] til að forðast ofsóknir. Það sé engin hefð fyrir því að fólk og heilu fjölskyldurnar flytji sig um set innan […], fólk væri þar sem rætur þess séu. Þau hafi ekki ráð á því að flytjast auk þess sem faðir kæranda hafi verið virkur í stjórnmálastarfi í sínu bæjarfélagi og væri því þekktur maður. […]. Það sé því ekki réttlætanlegt að ætlast til þess að fjölskyldan gæti flust búferlum, þar sem engin trygging sé fyrir því að ofsóknir og mismunun myndi minnka eða hætta.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagarammi

Í máli þessu gilda ákvæði laga nr. 96/2002 um útlendinga, reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga með áorðnum breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að þegar kærandi sótti um hæli á Íslandi hafi hún framvísað […] vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé […] ríkisborgari.

Landaupplýsingar

[…] er lýðræðisríki með um […] íbúa og eru mannréttindi almennt virt af stjórnvöldum þar í landi. […].

Kærunefnd útlendingamála hefur skoðað skýrslur og gögn um […].

Framangreind gögn benda ekki til þess að mismunun og ofsóknir vegna stjórnmálaskoðana í skilningi 44. gr. útlendingalaga tíðkist í landinu. Af gögnunum sést þó að grunnheilbrigðisþjónustu sé áfátt, […]. Í gögnunum kemur þó einnig fram að […] hafi miðað áfram í málefnum er snerta réttarkerfið, frelsi og öryggi og á undanförnum árum hefur talsvert verið unnið að því að uppræta spillingu í löggæslunni og dómsvaldinu.

a. Aðalkrafa kæranda

Kærandi óskaði eftir því að henni yrði veitt réttarstaða flóttamanns þann 22. júlí 2015, hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Til að teljast flóttamaður hér á landi þarf kærandi að sýna fram á að aðstæður hans séu slíkar að þær falli undir 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga, sbr. flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna, eða 2. mgr. 44. gr. sömu laga.

Í 1. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og viðauka við samninginn frá 31. janúar 1967. Um skilyrði þess að teljast flóttamaður er frekar mælt í 44. gr. a.

Almennt ber að telja ótta umsækjanda ástæðuríkan ef hann getur á nægilega skýran hátt sýnt fram á að áframhaldandi dvöl í heimalandi sé honum óbærileg af ástæðum sem tilgreindar eru í ákvæðinu, eða yrði óbærileg af sömu ástæðum ef hann sneri aftur. Þessi sjónarmið þurfa jafnframt ekki endilega að byggjast á persónulegri reynslu umsækjanda, heldur geta ofsóknir sem vinir hans eða ættingjar eða aðrir sem tilheyra sama þjóðfélagshópi hafa orðið fyrir, gefið til kynna að ótti hans við að verða fyrr eða síðar fórnarlamb ofsókna sé ástæðuríkur.

Í 44. gr. a útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir, á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggt og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Til þess að um sé að ræða ofsóknir skv. 1. mgr. 44. gr. verður að vera um að ræða athafnir sem í eðli sínu, eða vegna þess að þær eru endurteknar, fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samansafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 3. mgr. 44. gr. a eru taldir upp þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þar segir að:

Þeir sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eru:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess, og

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið þessarar málsgreinar, þar með talið alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 44. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Þótt fallist sé á að einstaklingur í þessari aðstöðu skuli njóta vafans upp að ákveðnu marki, verður kærandi a.m.k. að sýna fram á að líkur séu á að hans bíði ofsóknir í heimalandi. Samkvæmt meginreglum um túlkun flóttamannahugtaksins sem fram koma í handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, er m.a. miðað við það að viðkomandi þurfi almennt að sýna fram á að góðar ástæður liggi til grundvallar ótta við ofsóknir og að hugarástand flóttamannsins skipti ekki eitt máli heldur verði yfirlýsing hans einnig að fá stuðning í hlutlægum og staðreynanlegum aðstæðum (Handbók um réttarstöðu flóttamanna. Um málsmeðferð og skilyrði samkvæmt flóttamannasamningnum frá 1951 og bókun frá 1967 um réttarstöðu flóttamanna (Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Reykjavík 2008)).

Í ofangreindum skýrslum og gögnum sem kærunefndin skoðaði benti ekkert til þess að ofsóknir vegna stjórnmálaskoðana í skilningi 44. gr. útlendingalaga tíðkuðust í […]. Er það mat kærunefndar að þó svo kærandi ætti raunverulega á hættu illa meðferð í heimalandi sínu þá hafi hún raunhæfan möguleika á að flytja sig um set með fjölskyldu sinni og leita sér ásjár stjórnvalda þar. Heimildir benda ekki til að […] stjórnvöld skorti vilja eða getu til að veita kæranda fullnægjandi vernd óski hún eftir henni við þau.

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 3. mgr. 76. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 segir: „Börnum skal tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst.“ 3. mgr. 76. gr. sækir aðallega fyrirmynd til inngangsákvæða Barnasáttmálans, einkum 3. gr. Í 1. mgr. 1. gr. barnalaga, nr. 76/2003, segir að barn eigi rétt á að lifa, þroskast og njóta verndar, umönnunar og annarra réttinda í samræmi við aldur sinn og þroska og án mismununar af nokkru tagi. Í 2. mgr. 1. gr. segir að það sem barni er fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess. Barn á rétt á að láta skoðanir sínar í ljós í öllum málum sem það varða og skal taka réttmætt tillit til skoðana þess í samræmi við aldur þess og þroska, skv. 3. mgr. 1. gr. Börn í hælisleit sem koma með foreldrum sínum eða forsjáraðilum njóta að meginefni til sömu verndar og meðferðar og foreldrarnir. Þó eru ákvæði sem kveða á um að sérstaklega skuli tillit tekið til sjónarmiða barnsins í hælisviðtali svo dæmi sé tekið, sbr. 4. mgr. 50. gr. c. laga um útlendinga nr. 96/2002. Í 3. gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sbr. lög nr. 19/2013, er kveðið á um að ákvarðanir eða ráðstafanir yfirvalda er varða börn skuli byggðar á því sem börnum er fyrir bestu. Það sem barni er fyrir bestu ætti að hafa forgang hvort sem börn sækja um hæli á eigin vegum eða sem meðlimir fjölskyldu. Virðing fyrir sjónarmiðum barns í 12. gr. sáttmálans kveður á um að börn eigi rétt á að láta í ljósi skoðanir sínar í öllum málum er varða þau og að tekið sé réttmætt tillit til skoðana þeirra í samræmi við aldur þeirra og þroska. Börnum skuli veitt tækifæri til að tjá sig um eigin málefni við málsmeðferð fyrir dómi eða stjórnvaldi. Í viðtölum við foreldra eða forráðamenn barnsins skal ástand barnsins rannsakað og sjálfstæð hælisbeiðni þess. Í 22. gr. Barnasáttmálans er lögð skylda á aðildarríki til þess að gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leitar eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið er flóttamaður, fái, hvort sem það er í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eiga. Kærandi kom í viðtali hjá kærunefnd þann 9. desember sl. Í ljósi framburðar kæranda, upplýsinga um […] og gagna í málinu er það mat kærunefndar að það sé í samræmi við bestu hagsmuni kæranda að hún fylgi foreldrum sínum og systkinum til […].

Með vísan til alls ofangreinds telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga fyrir veitingu réttarstöðu flóttamanns.

Í 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga er kveðið á um að flóttamaður samkvæmt útlendingalögum telst einnig útlendingur sem telst ekki flóttamaður samkvæmt ákvæði A-liðar 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna ef raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til heimalands.

Í ljósi þess sem að framan er rakið telur kærunefndin að aðstæður kæranda í heimalandi hennar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 44. gr. laganna. Þá telur kærunefndin ekkert fram komið sem bendir til þess að hætt sé við því að kærandi sæti ómannúðlegri og/eða vanvirðandi meðferð við heimkomuna, sbr. 2. mgr. 44. og 1. mgr. 45 gr. laganna.

Brot gegn rannsóknarreglunni, sbr. 22. gr. stjórnsýslulaga

Talsmaður kæranda telur ákvörðun Útlendingastofnunar ekki fullnægja kröfum sem 22. gr. stjórnsýslulaga gerir til efni rökstuðnings stjórnvaldsákvörðunar, auk þess sem stofnunin hafi við töku ákvörðunar sinnar virt að vettugi mikilvæg ákvæði ýmissa laga er kveða á um að hagsmunir barna skuli hafðir að leiðarljósi við töku ákvarðana í málum er þau varða.

Í skýringarriti með stjórnsýslulögum (Stjórnsýslulögin-skýringarrit (Páll Hreinsson, 1994)) segir að í flestum tilvikum ætti að nægja tiltölulega stuttur rökstuðningur fyrir ákvörðunum í málum á fyrsta stjórnsýslustigi, en rétt væri að rökstyðja ítarlega ákvarðanir sem eru mjög íþyngjandi. Kæranda var gefinn kostur á að láta í ljós skoðanir sínar í viðtali hjá kærunefnd þann 9. desember sl. Í ljósi framburðar kæranda, upplýsinga um […] og gagna í málinu er það mat kærunefndar að sjónarmið kæranda hafi verið tekin til réttmætrar skoðunar og er það mat kærunefndar að hagsmunum hennar sé best borgið með foreldrum sínum. Foreldrar kæranda fengu synjun á umsóknum sínum um hæli og dvalarleyfi af mannúðarástæðum þann 14. október 2015. Kærunefndin telur að hagsmunum kæranda sé ekki stefnt í hættu með því að hún fylgi foreldrum sínum til […].

b. Varakrafa kæranda

Til vara er þess krafist að kæranda verði veitt dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli mannúðarsjónarmiða sbr. 12. gr. f laga um útlendinga.

Samkvæmt 12. gr. f er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi, þótt skilyrðum sé annars ekki fullnægt, ef rík mannúðarsjónarmið standa til þess eða vegna sérstakra tengsla útlendingsins við landið. Í 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að veita má dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum, eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til eða vegna annarra atvika sem ekki má með réttu gera honum að bera ábyrgð á. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Kærunefndin hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga og teljist því ekki flóttamaður. Þegar framburður kæranda er virtur í heild sinni ásamt gögnum málsins er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi heldur ekki sýnt fram á ríka þörf á vernd á grundvelli mannúðarsjónarmiða líkt og kveðið er á um í 12. gr. f útlendingalaga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í […] séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f útlendingalaga.

Jafnframt telur kærunefndin kæranda ekki uppfylla skilyrði 12. gr. f útlendingalaga um sérstök tengsl við landið. Eins og fram kemur í gögnum málsins hefur kærandi aðeins dvalið á Íslandi í tengslum við hælisumsókn sína og aðeins í skamman tíma.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar frá 14. október 2015.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The Directorate of Immigration‘s decision is affirmed.

Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta