Hoppa yfir valmynd
14. maí 2024

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakosninga 2024

Íslenski fáninn blaktir við hún - mynd

Athygli er vakin á því að utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakosninga á Íslandi 1. júní 2024, hefst í sendiráði Íslands í Vín föstudaginn 3. maí og stendur til 31. maí 2024. 

Opnunartímar: 

Hægt verður að kjósa í sendiráðinu alla virka daga sem hér segir:

  • Mán., þri. og fim. 13:00-16:00
  • Mið. og fös. 08:00-13:00

Sendiráðið verður þar að auki með lengdan opnunartíma til kl. 18:00 eftirtalda daga: mán. 6. maí, þri. 14. maí, fim. 16. maí, þri. 21. maí og mið. 22. maí. Tímapöntun er óþörf, nema kjósendur hafi ekki færi á að kjósa á ofangreindum tímum, þá eru þeir góðfúslega beðnir um að hafa samband við sendiráðið og panta tíma.

Vinsamlegat athugið að sendiráðið er lokað 9. maí (uppstigningardag) og 20. maí (2. í Hvítasunnu).

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hjá kjörræðismönnum: 

Hægt verður að kjósa utan kjörfundar hjá kjörræðismönnum Íslands í umdæmislöndum sendiráðsins, eftir tímapöntun. Nánari upplýsingar um kjörræðismenn Íslands í Austurríki og umdæmislöndunum, Króatíu, Slóvakíu, Slóveníu og Ungverjalandi, er að finna á síðu sendiráðsins: Stjórnarráðið | Ungverjaland (stjornarradid.is)

Gagnlegar upplýsingar:

Gagnlegt er fyrir kjósendur að kynna sér upplýsingar um fyrirkomulag kosninga utan kjörfundar á heimasíðu Island.is: Forsetakosningar 2024 | Ísland.is (island.is)

Ef kjósendur eru efins um hvort þeir geti kosið (séu á kjörskrá) geta þeir flett upp kennitölu sinni í kjörskrá á síðum Þjóðskrár frá 26. apríl nk.: Kjörskrá og kosningar | Þjóðskrá (skra.is)

Hvernig kem ég atkvæði mínu til skila:

Athygli er vakin á því að skv. kosningalögum ber kjósandi sjálfur ábyrgð á því að koma atkvæði sínu á réttan stað. Til að tryggja að atkvæðið nái til viðkomandi kjörstjórnar innan tilskilins tíma, er mælst til þess að kjósendur greiði atkvæði sitt utan kjörfundar í sendiráðum og á kjörræðisskrifstofum erlendis fyrri hluta maímánaðar.

Hægt er að setja bréfið í póst eða afhenda það einhverjum sem kjósandi felur að koma til skila. Kjörstjóra (þ.m.t sendiráðum) er skylt að koma atkvæðinu í almennan póst ef kjósandi óskar þess en kjörstjóri getur þó ekki tryggt að atkvæðið berist í tæka tíð.

 

Önnur lönd:

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta