Umsækjendur um embætti héraðsdómara
Fréttatilkynning
27/2005
Hinn 20. júlí sl., rann út umsóknarfrestur um embætti héraðsdómara sem mun eiga fast sæti við Héraðsdóm Austurlands. Dómsmálaráðherra skipar í embættið frá og með 1. september 2005.
Um embættið sóttu:
- Helgi Jensson, staðgengill sýslumannsins á Seyðisfirði
- Kristinn Halldórsson, settur héraðsdómari og dómstjóri,
- Pétur Dam Leifsson, aðstoðarmaður héraðsdómara og lektor við Háskólann á Akureyri,
- Ragnheiður Bragadóttir, héraðsdómslögmaður.
Reykjavík, 22. júlí 2005