Kaup á nýju lyfi gegn alvarlegum veikindum af völdum Covid-19
Heilbrigðisyfirvöld hafa ákveðið kaup á nýju lyfi sem heitir Sotrovimab frá GlaxoSmithKline og þykir gefa góða raun til að draga úr hættu á alvarlegum veikindum fólks vegna Covid-19 við vissar aðstæður. Lyfið er svokallað einstofna mótefni. Meðferð með einstofna mótefnum gagnast best þeim sem eru óbólusettir og/eða þeim sem mynda illa mótefni vegna lyfja eða sjúkdóma og er notkunin bundin við upphaf veikinda hjá þeim sem eru í aukinni hættu á að þróa með sér alvarlegan sjúkdóm. Til að byrja með hefur verið ákveðið að kaupa 72 skammta af lyfinu sem svokallað undanþágulyf og er það væntanlegt er til landsins síðar í þessum mánuði. Landspítali annast framkvæmd innkaupanna.