Hoppa yfir valmynd
27. ágúst 2013 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 99/2012.

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 27. ágúst 2013 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 99/2012.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 8. maí 2012, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði ákveðið á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda þar sem kærandi hafi þegið greiðslur atvinnuleysisbóta án þess að eiga rétt á þeim vegna dvalar sinnar erlendis á tímabilinu frá 31. mars til 12. apríl 2012 sem hann vísvitandi lét hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun. Var það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hann hafi starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði. Kæranda var einnig gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur, að viðbættu 15% álagi, fyrir fyrrgreint tímabil, samtals að fjárhæð 59.603 kr. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 6. júní 2012. Hann krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að hin kærða ákvörðun hafi verið rétt.

Kærandi sótti síðast um atvinnuleysisbætur 3. janúar 2012.

Eftirlitsdeild Vinnumálastofnunar barst ábending þess efnis að kærandi hafi verið staddur í útlöndum í janúar og apríl 2012. Kæranda var í kjölfarið sent bréf, dags. 18. apríl 2012, frá eftirlitsdeildinni þar sem óskað var eftir skýringum á dvöl hans. Kærandi kom 23. apríl 2012 á skrifstofu Vinnumálastofnunar, þar sem hann greindi frá því að hann hefði ekki farið til útlanda í janúar en hins vegar hefði hann farið til útlanda í apríl til að leika í kvikmynd. Var kæranda bent á að skila inn skriflegum skýringum til eftirlitsdeildarinnar ásamt farseðlum. Eftir hádegi 23. apríl 2012 hringdi kærandi til Vinnumálastofnunar og sagði frá því að grunur stofnunarinnar um dvöl hans erlendis væri misskilningur sem gæti stafað af því að systursonur hans og alnafni væri staddur erlendis. Í kjölfarið sendi kærandi tölvubréf þar sem fram kom að enginn möguleiki væri á því að hann hefði farið til útlanda í janúar og apríl. Um væri að ræða misskilning sem hljóti að stafa af því að systursonur hans og alnafni hafi verið í útlöndum í janúar og apríl. Tölvupóstur þessi er meðal gagna málsins.

Vinnumálastofnun hafði undir höndum upplýsingar frá tollyfirvöldum um að kærandi hafi verið erlendis á tímabilinu frá 31. mars til 12. apríl 2012. Þá hafi legið fyrir viðtal við kæranda í Fréttatímanum í apríl 2012 þar sem greint var frá því að kærandi hefði dvalist í Bandaríkjunum vegna hlutverks hans í nýrri mynd eftir B.

Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 8. maí 2012, var kæranda tilkynnt um hina kærðu ákvörðun. Vinnumálastofnun bárust 9. maí 2012 upplýsingar frá B í tölvubréfi þar hann greindi frá því að hann hefði greitt allan kostnað vegna dvalar kæranda í Bandaríkjunum þar sem kærandi hafi tekið að sér hlutverk í mynd sem B framleiddi. Meðfylgjandi var farmiði er staðfesti dvöl kæranda í Bandaríkjunum á tímabilinu 31. mars til 12. apríl 2012. Vinnumálastofnun barst tölvubréf frá kæranda, dags. 14. maí 2012, þar sem fram kemur að hann hafi verið í Bandaríkjunum á fyrrgreindu tímabili að leika í kvikmynd. Kærandi greinir jafnframt að hann hafi ekki fengið greitt fyrir hlutverkið en allt annað hafi verið greitt eins og ferðalagið sjálft, matur og gisting.

Vinnumálastofnun tók mál kæranda upp aftur í samræmi við 24. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og með bréfi, dags. 7. júní 2012, var kæranda tilkynnt að fyrri ákvörðun í máli hans yrði staðfest þar sem ekki hafi komið fram nýjar upplýsingar sem gæfu tilefni til nýrrar ákvörðunar í máli hans.

Af hálfu kæranda kemur fram að hann hafi farið í tvær vikur til útlanda í apríl en sá misskilningur virðist vera hjá Vinnumálastofnun að hann hafi farið út í janúar og í apríl. Frændi hans og alnafni hafi farið þá ferð. Kærandi greinir frá því að hann hafi sjálfur látið vita af för sinni þegar hann kom til baka en hann hafi ekki vitað að hann þyrfti að láta vita fyrirfram.

 

Í greinargerð sinni til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 22. júní 2012, greinir Vinnumálastofnun frá því að mál þetta varði 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem kærandi hafi látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem urðu á hans högum á því tímabili sem hann fékk greiddar atvinnuleysisbætur og veitti vísvitandi rangar upplýsingar um dvöl sína erlendis.

Vinnumálastofnun bendir á að í c-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé mælt fyrir um að umsækjandi um greiðslur atvinnuleysistrygginga þurfi að vera búsettur og staddur hérlendis til að teljast tryggður samkvæmt lögunum. Jafnframt bendir Vinnumálastofnun á 3. mgr. 9. gr. um upplýsingaskyldu umsækjenda um atvinnuleysisbætur. Þá bendir stofnunin á að í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé enn frekar mælt fyrir um þessa upplýsingaskyldu hins tryggða. Þar komi fram að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum. Á heimasíðu Vinnumálastofnunar komi þessar upplýsingar einnig fram undir liðnum „réttindi og skyldur“. Þar segi „Ekki er heimilt að dvelja erlendis á sama tíma og umsækjandi þiggur atvinnuleysisbætur nema hafa sótt um E-303 vottorð.“

 

Vinnumálastofnun bendir á að í ákvæði 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög við brotum á þessari upplýsingaskyldu hins tryggða. Í 13. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé skýrt kveðið á um þá skyldu umsækjanda um greiðslur atvinnuleysisbóta að vera í virkri atvinnuleit. Sé það jafnframt gert að skilyrði að umsækjandi sé staddur hérlendis, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Óumdeilt sé að kærandi var staddur erlendis á sama tíma og hann var skráður atvinnulaus hjá Vinnumálastofnun. Vinnumálastofnun vísar til þess að samkvæmt fyrirliggjandi farseðlum hafi kærandi verið staddur erlendis á tímabilinu 31. mars til 12. apríl 2012. Kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun fyrirfram um utanlandsferð sína líkt og honum hafi borið að gera skv. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun tekur fram að margsinnis hafi verið vakin athygli á því að eitt af skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hér á landi og að ótilkynntar ferðir til útlanda séu óheimilar meðfram töku atvinnuleysisbóta. Einu undanþágurnar frá skilyrðum c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að finna í VIII. kafla laganna. Vinnumálastofnun greinir frá því að sérstaklega sé vakin athygli á þessum atriðum á heimasíðu stofnunarinnar. Að auki séu lög um atvinnuleysistryggingar aðgengileg á heimasíðunni. Vinnumálastofnun vekur athygli á því að í þeim tilvikum sem henni er tilkynnt um slíkar ferðir fyrirfram sé atvinnuleitanda gerð grein fyrir því, nema fyrir liggi E-303 vottorð hjá stofnuninni, að hann fái ekki greiddar atvinnuleysisbætur á meðan hann dvelst erlendis.

Fram kemur að það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi í umrætt sinn látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar um atvik er höfðu bein áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysistrygginga. Það sé enn fremur mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi vísvitandi veitt stofnuninni rangar upplýsingar um dvöl sína erlendis, sbr. tölvupóst kæranda sem hafi borist stofnuninni 23. apríl 2012, þar sem kærandi segi að uppi hljóti að vera misskilningur þar sem enginn möguleiki sé á því að hann hafi farið erlendis. Að mati Vinnumálastofnunar beri kæranda því að sæta viðurlögum skv. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þá beri kæranda að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 59.603 kr. með 15% álagi í samræmi við 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysisbætur.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 25. júní 2012, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 9. júlí 2012. Frekari athugasemdir bárust frá kæranda í tölvubréfi, dags. 11. september 2012.

Í athugasemdum kæranda kemur fram að hann sé áhugamaður um leiklist og honum hafi verið boðið til Bandaríkjanna til þess að fara í áheyrnarprufu fyrir kvikmynd. Vegna vanþekkingar sinnar hafi hann ekki tilkynnt um ferðina fyrirfram en allt hafi verið greitt af kvikmyndaverinu og B. Á meðan hann hafi verið erlendis hafi honum verið bent á að láta Vinnumálastofnun vita en hann hafi gert það þegar hann kom heim því annað hefði ekki verið unnt vegna vinnu og tímamismunar. Kærandi greinir frá því að þegar hann hafi komið heim hafi hann fengið bréf frá Vinnumálastofnun þar sem fram kemur að hann hafi verið erlendis í janúar og apríl. Kærandi bendir á að hann hafi ekki farið til útlanda í janúar.


 

 

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að því hvort kærandi hafi aflað atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti í skilningi 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Með hliðsjón af mikilvægi ákvæðisins við framkvæmd atvinnuleysistryggingakerfisins þykir réttlætanlegt að varpa ítarlegu ljósi á forsögu þess og tilgang. Markmiðið með þessu er að setja fram skýr viðmið um hvernig beri að túlka ákvæðið.

Þegar lög um atvinnuleysistryggingar voru upphaflega sett var kveðið á um þá meginreglu í fyrstu málsgrein 60. gr. laganna að sá sem aflar sér eða reynir að afla sér atvinnuleysisbóta samkvæmt lögunum með svikum getur misst rétt sinn í allt að tvö ár og þurft að sæta sektum. Það var hvergi skýrlega skilgreint hvað væru svik í skilningi ákvæðisins og er sú ályktun nærtæk að ákvæðinu hafi sjaldan verið beitt fram til þess tíma sem því var breytt með setningu 23. gr. laga nr. 134/2009. Þessi nýja regla tók gildi 1. janúar 2010 og veigamesti tilgangur hennar var að sporna gegn „svartri atvinnustarfsemi“.

Í athugasemdum greinargerðar við 23. gr. frumvarps þess er síðar varð að lögum nr. 134/2009 kom meðal annars fram að beita ætti ákvæðinu í þrenns konar tilvikum, í fyrsta lagi þegar atvinnuleitandi veitir Vinnumálastofnun vísvitandi rangar upplýsingar í umsókn um atvinnuleysisbætur sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögunum, í öðru lagi þegar atvinnuleitandi starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. laganna og í þriðja lagi þegar atvinnuleitandi verður uppvís að þátttöku á vinnumarkaði án þess að hafa tilkynnt um tilfallandi vinnu, sbr. nú 35. gr. a.


 

Með setningu 4. gr. laga nr. 103/2011 var orðalagi fyrsta málsliðar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar breytt. Frá og með 3. september 2011 hefur ákvæðið verið svohljóðandi:

Sá sem lætur vísvitandi hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða veitir vísvitandi rangar upplýsingar sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. eða um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

Þegar þessi texti er skýrður er óhjákvæmilegt að horfa til þeirra athugasemda sem vitnað var hér til að framan um 23. gr. laga nr. 134/2009. Þannig er ljóst að fyrsti málsliður ákvæðisins á við ef atvinnuleitandi hefur með vísvitandi hætti hegðað sér með tilteknum hætti á meðan slíkt huglægt skilyrði á ekki við ef háttsemin fellur undir annan málslið ákvæðisins. Þessi munur stafar af því að annar málsliðurinn tekur á því þegar atvinnuleitandi starfar á vinnumarkaði, til lengri eða skemmri tíma, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína skv. 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar að upplýsa Vinnumálastofnun um þessa atvinnuþátttöku.

Sérstök ástæða er til að taka fram að orðalagið „[h]ið sama gildir“ í upphafi annars málsliðar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar vísar einvörðungu til viðurlaganna sem upp eru talin í fyrsta málslið ákvæðisins en ekki til þeirra huglægu skilyrða sem þar þurfa að vera uppfyllt. Þessi túlkun byggir meðal annars á því að greiðsla atvinnuleysisbóta er ekki ætluð þeim sem sinna störfum á vinnumarkaði og því teljast það svik í skilningi annars málsliðar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar ef atvinnuleitandi sinnir starfi á vinnumarkaði án þess að láta Vinnumálastofnun vita af því með þeim hætti sem kveðið er á um í 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar. Þessi skilningur er í samræmi við orðalag annars málsliðar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og fær einnig stoð í athugasemdum greinargerðar við 23. gr. frumvarps þess er síðar varð að lögum nr. 134/2009.

 

Hvort sem háttsemi fellur undir fyrsta eða annan málslið 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar eru viðurlög við bótasvikum ströng en þau fela í sér að atvinnuleitanda ber ekki að eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Jafnframt ber atvinnuleitanda að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr. laganna, sbr. lokamálslið 60. gr. laganna.

Þá segir í 35. gr. a:

Þeim sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum ber að tilkynna til Vinnumálastofnunar með að minnsta kosti eins dags fyrirvara um tilfallandi vinnu sem hann tekur á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum. Heimilt er þó að tilkynna samdægurs um tilfallandi vinnu enda sé um að ræða tilvik sem er þess eðlis að mati Vinnumálastofnunar að ekki var unnt að tilkynna um hina tilfallandi vinnu fyrr. Í tilkynningunni skulu meðal annars koma fram upplýsingar um hver vinnan er, um vinnustöðina og um lengd þess tíma sem hinni tilfallandi vinnu er ætlað að vera.“

Samkvæmt gögnum málsins, sbr. meðal annars upplýsingum frá kæranda sjálfum, var hann staddur í Bandaríkjunum á tímabilinu frá 31. mars til 12. apríl 2012 við upptökur í kvikmynd. Af gögnum málsins verður hvorki ráðið að kærandi hafi tilkynnt Vinnumálastofnun um störf sín vegna kvikmyndarinnar, þ.e. um hina tilfallandi vinnu í skilningi 35. gr. a, né um ferðir erlendis vegna þessa en kærandi fékk greiddar atvinnuleysisbætur frá stofnuninni á sama tíma. Í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er kveðið á um þá skyldu atvinnuleitanda að upplýsa Vinnumálastofnun um breytingar á högum viðkomandi eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, eins og námsþátttöku og tekjur fyrir tilfallandi vinnu.

Samkvæmt 10. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er atvinnuleitanda gert að tilkynna til Vinnumálastofnunar án ástæðulausrar tafar þegar hann hættir virkri atvinnuleit. Kærandi greinir frá því að hann hafi farið til útlanda vegna möguleika á starfi í kvikmynd. Atvinnuleitendur er dveljast í útlöndum teljast ekki uppfylla það almenna skilyrði 1. mgr. 13. gr. og 1. mgr. 18. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að hinn tryggði skuli vera staddur hér á landi.

 

 

Kærandi kveður sér ekki hafa verið kunnugt um viðkomandi reglur en að mati úrskurðarnefndarinnar getur kærandi ekki borið fyrir sig vankunnáttu í lögunum, þar sem víðtækar upplýsingar um stöðu atvinnuleitenda liggja fyrir, meðal annars á heimasíðu Vinnumálastofnunarinnar. Þar kemur skýrt fram að atvinnuleitanda ber að veita nákvæmar upplýsingar um hagi sína, meðal annars vegna tilfallandi tekna. Hin kærða ákvörðun lýtur eingöngu að tímabilinu frá 31. mars til 12. apríl 2012 og því kemur sú málsástæða kæranda að hann hafi ekki verið erlendis í janúar 2012 hér því ekki til skoðunar.

Í ljósi afdráttarlausrar verknaðarlýsingar í 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þeirrar skyldu atvinnuleitanda sem kveðið er á um í 35. gr. a sömu laga, verður að telja að kærandi hafi brugðist trúnaðar- og upplýsingaskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun. Með vísan til framangreinds og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram fyrir hinni kærðu ákvörðun, verður hún staðfest.

Í samræmi við 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar ber kæranda að standa skil á ofgreiddum atvinnuleysisbótum ásamt 15% álagi fyrir tímabilið frá 31. mars til 12. apríl 2012 alls 59.603 kr. en innifalið í þeirri fjárhæð er 15% álag.

 


 

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 8. maí 2012 í máli A, þess efnis að kærandi skuli ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði og hann skuli endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð samtals 59.603 kr., er staðfest.

 

Brynhildur Georgsdóttir,

formaður

 

                        Hulda Rós Rúriksdóttir                                 Helgi Áss Grétarsson

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta