Hátíðardagskrá á degi íslenskrar tungu
Verðlaunaafhending á degi íslenskrar tungu fer fram við hátíðlega athöfn í Þjóðminjasafni Íslands. Útsendingin hefst kl. 15.
Markmið dags íslenskrar tungu er að minna á mikilvægi íslenskrar tungu og gleðjast og fagna sögu hennar, samtíð og framtíð. Dagurinn er haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember ár hvert.
Fréttatilkynning um verðlaunaafhendinguna verður send út að athöfn lokinni.