Fyrstu 1000 dagarnir í lífi barna skipta sköpum!
„Mikilvægasta líffæri ungbarna er heilinn. Hvernig heilinn er örvaður á fyrstu dögum og mánuðum í lífi barns hefur mikið að segja. Að fara á mis við jákvæða reynslu og upplifun á þessum tíma getur verið óafturkræfanlegt,“ segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. „Það er mikið áhyggjuefni að hundruð milljóna barna um allan heim verða fyrir alvarlegum skaða vegna lélegrar næringar, vegna ofbeldis og mengunar og vegna skorts á örvun,“ bætir hann við.
Skortur á örvun og snertingu, mengun, ofbeldi, léleg næring og áreiti frá snjallsímum og samfélagsmiðlum í lífi foreldra geta allt haft neikvæð áhrif á þroska heila barna á mikilvægustu dögum lífs þeirra – fyrstu 1000 dögunum. Því hefur UNICEF á Íslandi hefur tekið höndum saman með Embætti landlæknis og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við útgáfu á veggspjaldi með ráðum um þroska og umönnun barna. Útgáfan er hluti af alþjóðlegu átaki UNICEF, #EarlyMomentsMatter.
„Að skapa aðstæður fyrir heilbrigðan þroska á heila barns frá fyrstu augnablikum í lífi þess er eitt mikilvægasta verkefni samfélaga um allan heim, líka á Íslandi. Mæðra- og ungbarnavernd á Íslandi er með þeirri bestu í heimi og hjúkrunarfræðingar hér á landi hafa í mörg ár skimað fyrir andlegri vanlíðan hjá konum eftir fæðingu. Nú er einnig skimað fyrir kvíða og þunglyndi á meðgöngu hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Ekki má þó gleyma hversu veigamiklu hlutverki tengsl milli barns og aðstandenda eftir fæðingu gegna til að skapa heilsteyptan einstakling,“ segir í frétt á vef UNICEF.
Veggspjöldin, sem verður dreift á allar heilsugæslustöðvar á landinu og víðar, gefa einföld ráð til foreldra um umönnun barna, allt frá fyrstu vikunni í lífi þess til tveggja ára og eldri. „Þetta eru ekki ráð sem kosta peninga heldur felast þau í samveru, leikjum, snertingu og samskiptum. Að tala við barn, syngja, knúsa og leika hljómar hversdagslega en það þjónar allt mikilvægu hlutverki við að þroska og styrkja taugatengingar í heila barnsins. Jákvæð örvun og samskipti skipta sköpum fyrir velferð barna og hafa áhrif á námsfærni, andlegan þroska, samskiptafærni, mál og minni. Að vekja athygli á mikilvægi tengslamyndunar þegar kemur að umönnun barna er því mikilvæg fjárfesting fyrir framtíðina og samfélagið allt,“ segir í fréttinni.
Fræðsluefni um fyrstu árin og tengsl foreldra og ungbarna má finna á Heilsuvera.is
#EarlyMomentsMatter fræðsluefni og myndbönd um þroska og örvun ungbarna frá UNICEF má finna hér.
UNICEF er ein af lykilstofnunum utanríkisráðuneytisins í þróunarsamvinnu Íslands. Kjarnaframlög stjórnvalda til stofnunarinnar námu á síðasta ári rúmlega 130 milljónum króna.