Yfir 80% framlaga til þróunarsamvinnu styðja jafnrétti kynjanna
Ísland er í þriðja sæti á nýbirtum lista DAC, þróunarsamvinnunefndar OECD, um hlutfall þróunarfjár sem rennur til jafnréttismála. Tölurnar eru frá árunum 2016 og 2017 og samkvæmt greiningu DAC nýttust rúmlega 80 prósent íslenskra framlaga í baráttuna fyrir kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna. Svíþjóð og Írland voru fyrir ofan Ísland á listanum en allar þjóðirnar þrjár vörðu ríflega 80 prósentum af framlögum til þróunarsamvinnu til jafnréttismála.
Framlög þjóða sem eru aðilar að þróunarsamvinnunefndinni eru greind eftir ýmsum þáttum. Fram til ársins 2010 náði slík greining eingöngu til svokallaðra „geira“ en frá þeim tíma hefur flokkunin orðið nákvæmari og jafnréttismálin eru meðal þeirra málaflokka sem sérstaklega eru rýnd. Sú aðferðafræði, svonefnd kynjajafnréttisstika (Gender Equality Marker), hefur reynst mikilvægur hluti af umsjón með framlögum til þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar hér á landi.
Í nýrri skýrslu OECD um framlög til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu sést að samkvæmt kynjajafnréttisstikunni eru samstarfsþjóðir okkar í tvíhliða þróunarsamvinnu efstar á blaði yfir viðtakendur, 100% af fjármagni til Malaví er eyrnamerkt jafnrétti og 97% í Úganda. Þá renna 96% af fjármunum mannúðarmála vegna Sýrlands til málaflokksins og til Mósambíkur var hlutfallið það sama.
Jafnrétti kynjanna og valdefling kvenna eru einn af hornsteinum þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar Íslands. Íslensk stjórnvöld hafa um árabil lagt áherslu á að verkefni og framlög, bæði í tvíhliða eða fjölþjóðlegri samvinnu, styðji við jafnrétti kynjanna og bæti stöðu stúlkna og kvenna.