Afhending trúnaðarbréfs í Líbanon
Íslensk stjórnvöld hafa veitt mannúðaraðstoð til Líbanons í gegnum Samhæfingaskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA), Neyðarsjóð Sameinuðu þjóðanna (CERF) og Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP). Þá hefur Rauði kross Íslands veitt aðstoð, m.a. í kjölfar sprengingarinnar í skipahöfninni í Beirút þ. 4. ágúst 2020, sem varð um 200 manns að bana.
Ísland veitti einnig 15 m.kr. aðstoð til menningargeirans í borginni í kjölfar sprengingarinnar undir hatti "LiBeirut" verkefnisins á vegum UNESCO. Styrkir voru veittir til Terdad útilistahátíðarinnar í júlí sl. sem nýttust meira en 200 starfsmönnum í skapandi greinum. Þetta var fyrsta listahátíðin í Beirút í kjölfar sprengingarinnar og því kærkomin og vel sótt. Þá er verið að gera upp á annan tug listaverka í eigu ríkisins sem skemmdust í sprengingunni, undir hatti aðstoðarinnar frá Íslandi, og styrkja leikhúsverkefni Zoukak Stúdíósins en húsnæði þess varð mjög illa úti í sprengingunni eins og flestallar menningarmiðstöðvar og gallerí í Beirút. Þar fá jaðarhópar eins og flóttamenn aðgang að leiklistarmeðferð (drama therapy) og aðstöðu til leiksýninga. Öll aðstoð Íslands beinist til frjálsra félagasamtaka.