Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið janúar – júní 2018
Eitt tilboð barst um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9091) samtals 2.000 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 2.200 stk. Úthlutað var án útboðs.
Eitt tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9093) samtals 2.000 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 3.000 stk. Úthlutað var án útboðs.
Þrjú tilboð bárust um innflutning á rósum (0603.1100) samtals 3.350 stk., á meðalverðinu 33 kr./stk. Hæsta boð var 55 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 2.000 stk. á meðalverðinu 46 kr./stk.
Þrjú tilboð bárust um innflutning á tryggðablómum (0603.1400) samtals 9.900 stk., á meðalverðinu 5 kr./stk. Hæsta boð var 55 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. Tilboði var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 9.000 stk. á meðalverðinu 5 kr./stk.
Þrjár umsóknir bárust um innflutning á afskornum blómum, (0603.1909) samtals 88.325 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 166.250 stk. Úthlutað var án útboðs.
Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og nýsköpunararráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:
Blómstrandi pottaplöntur janúar - júní 2018
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
2.000 |
Garðheimar-Gróðurvörur ehf |
Aðrar pottaplöntur janúar – júní 2018
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
2.000 |
Garðheimar–Gróðurvörur ehf |
Rósir janúar – júní 2018
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
1.000 |
Garðheimar–Gróðurvörur ehf |
1.000 |
Samasem ehf |
Tryggðablóm janúar – júní 2018
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
400 |
Blómabúð Akureyrar ehf |
500 |
Garðheimar-Gróðurvörur ehf |
8.100 |
Samasem ehf |
(Annars) afskorin blóm janúar – júní 2018
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
3.325 |
Blómabúð Akureyrar ehf |
20.000 |
Garðheimar-Gróðurvörur ehf |
65.000 |
Samasem ehf |
Reykjavík, 15. desember 2017
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið